Lífið

Frum­­leg við­­reynslu­að­­ferð virðist hafa virkað

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Parið er sagt hafa mikinn áhuga hvort á öðru.
Parið er sagt hafa mikinn áhuga hvort á öðru. Getty/Winter

Rapparinn Jack Harlow og tónlistarkonan Dua Lipa eru sögð vera að slá sér upp saman. Harlow samdi lag sem heitir Dua Lipa og var á nýrri plötu rapparans, sem gefin var út í maí á þessu ári.

Harlow hefur áður greint frá því að hann hafi fengið leyfi Lipa fyrir nafngiftinni. Hann hringdi í hana og í „nokkuð vandræðalegu símtali“ gaf hún grænt ljós á nafn lagsins. Greint var frá því í síðasta mánuði að Dua Lipa og Trevor Noah væru í sambandi, en það virðist hafa runnið út í sandinn.

Page Six greinir frá því að Lipa og Harlow hafi snætt dögurð saman í nóvember og þar hafi áhugi kviknað. Þau eru sögð hafa átt í stöðugum samskiptum síðustu vikur og hafa sést saman nokkrum sinnum síðan þá, meðal annars á Jingle-Ball viðburðinum í New York.


Tengdar fréttir

Trevor Noah hættir eftir sjö ár á skjánum

Þáttastjórnandinn Trevor Noah ætlar að hætta sem stjórnandi þáttarins The Daily Show á Comedy Central. Trevor hefur séð um þættina í sjö ár. Hann segist fyrst og fremst finna fyrir þakklæti þegar hann horfir yfir farinn veg. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×