Lífið

Frægir fjölguðu sér árið 2022

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Það var barnalán hjá fræga fólkinu á árinu 2022.
Það var barnalán hjá fræga fólkinu á árinu 2022. vísir

Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2022 og Vísir greindi frá.

Ferðaljós­mynd­ar­inn og áhrifavaldurinn Ása Stein­ars­dótt­ir eignaðist son þann 2. janúar með manni sínum Leo Alsved. Drengurinn fékk nafnið Atlas. 

Tónlistarfólkið Arnar Freyr Frostason og Salka Sól Eyfeld eignuðust sitt annað barn í byrjun árs. Drengurinn fékk nafnið Frosti Eyfeld.

„Það er svo hellað að fæða barn. En það er svo þess virði. Velkominn í heiminn gutti litli. Allir flottir hér.“

Kraftlyftingaparið Ellen Ýr Jónsdóttir og Júlían J. K. Jóhannsson, eignuðust sitt annað barn í janúar. Draumadísin þeirra fékk nafnið Kolfinna Karlotta. 

Rapparinn Herra Hnetusmjör og kærasta hans, Sara Linneth Lovísudóttir Castañeda, eignuðust sitt annað barn þann 16. janúar. Drengurinn hefur fengið nafnið Krummi Steinn Árna­son Castañeda.

Tveggja barna foreldrarnir, Herra Hnetusmjör og Sara Linneth.

Tískubloggarinn Pattra Sriyanonge og knattspyrnumaðurinn Theódór Elmar Bjarnason eignuðust sitt annað barn þann 22. febrúar. Fyrir eiga hjónin soninn Atlas.

„22/02/22 á slaginu 20:00 mætti draumadísin okkar eftir 36 klst fæðingu. Hún lét svo sannarlega hafa fyrir sér en það var allt þess virði þegar ég fékk að taka á móti henni sjálf.“

Stúlkan fékk nafnið Aurora Thea.

Unnur Eggertsdóttir, leik- og söngkona eignaðist dóttur með unnusta sínum Travis. Stúlkan fékk nafnið Emma Sólrún.

Unnur Eggertsdóttir brosir eflaust hringinn í dag líkt og hún gerði í janúar, þegar þessi mynd var tekin.Vísir/Vilhelm

Hlauparinn Arnar Pétursson og Sara Björk Þorsteinsdóttir förðunarfræðingur og ljósmyndari eignuðust stúlku í mars. Hún fékk nafnið Salka Sigrún.

Samfélagsmiðlastjarnan, guðfræðingurinn og rithöfundurinn Erna Kristín Stefánsdóttir, betur þekkt undir nafninu Ernuland, eignaðist tvíburadrengi með eiginmanni sínum, trommuleikaranum Bassa Ólafssyni. Drengirnir voru skírðir Adam Bassi og Emil Bassi. 

Einar Þorsteinsson og Milla Ósk Magnúsdóttir eignuðust dreng í apríl. Hann fékk nafnið Emil Magnús.

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona og kærasti hennar, Ólafur Friðrik Ólafsson, eignuðust dóttur saman 23. apríl. Stúlkan er fyrsta barn þeirra saman en Jóhanna Guðrún átti fyrir tvö börn úr fyrra hjónabandi. Stúlkan var skírð í höfuðið á móður sinni og fékk nafnið Jóhanna Guðrún. 

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir eignuðust sitt fjórða barn í maí en fyrir áttu þau einn son og tvær dætur. Drengurinn þeirra fékk nafnið Friðrik Nói. 

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og Laufey Rún Ketilsdóttir, aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, eignuðust stúlkubarn í maí.

Bergþór Ólason og Laufey Rún Ketilsdóttir.

Útvarpsmaðurinn Egill Ploder Ottósson og Thelma Gunnarsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn þann 10. maí. Fékk hann nafnið Patrik Ploder Egilsson.

Fjölmiðlakonan Fanney Birna Jónsdóttir og eiginmaður hennar Andri Óttarsson eignuðust sitt annað barn. Stúlkan fékk nafnið Bríet Arnbjörg. 

Íþróttafréttakonan Kristjana Arnarsdóttir og kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús eignuðust sitt fyrsta barn þann 30. júní. Stúlkan var skírð Rósa Björk. 

Sonur Dóru Bjartar Guðjónsdóttur borgarfulltrúa og Sævar Ólafssonar íþróttafræðings kom í heiminn í sumar. Drengurinn fékk nafnið Brimir Jaki. Að sögn Dóru Bjartar er fyrra nafnið innblásið af bókmenntum en hið síðara verkalýðsbaráttu.

Tónlistarmaðurinn Matthías Tryggvi Haraldsson og söng- og leikkonan Brynhildur Karlsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn í sumar. 

Söngkonan og Eurovision-stjarnan María Ólafsdóttir og trommarinn Gunnar Leó Pálsson eignuðust lítinn dreng í byrjun júlí. 

Parið er ekki með opið Instagram. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, einnig þekkt undir listamannsnafninu GDRN og sambýlismaður hennar Árni Steinn Steinþórsson eignuðust son í júlí. Drengurinn fékk nafnið Steinþór Jóhann Eyfjörð Árnason.

„Hann er mættur og hann er fullkominn.“

Tinna Björk Kristinsdóttir og Ingólfur Grétarsson, betur þekkt sem Tinna­bk og Gói Sportrönd, eignuðust dóttur 2.ágúst.

Andrea Röfn Jónasdóttir og eiginmaður hennar Arnór Ingvi Traustason eignuðust sitt annað barn í ágúst. Sonur þeirra hlaut nafnið Arnór Rafael. 

Erum yfir okkur hamingjusöm og þakklát fyrir son okkar. Andrea hetjan sem hún er var ótrúleg. Móður og barni heilsast vel og Aþena Röfn er stolt stóra systir,“ sagði í færslu Arnórs á Instagram.

Dóttir Ragnhildar Öldu Maríu Vilhjálmsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Einars Friðrikssonar læknakandídats kom í heiminn í september. Stúlkan fékk nafnið Ragnhildur Erla.

Trendnet bloggarinn og athafnakonan Elísabet Gunnarsdóttir og handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson eignuðust sitt þriðja barn í október. Stúlkan hefur fengið nafnið Anna Magdalena. 

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, einnig þekktur sem Ingó veðurguð, eignaðist barn með kærustu sinni Alexöndru Eir Davíðsdóttur. Drengurinn kom í heiminn þann 9. október. Ingó er ekki með opið Instagram en Gummi Tóta bróðir hans birti mynd af drengnum á Instagram. 

Guðrún Helga Sørtveit, förðunarfræðingur með meiru eignaðist sitt annað barn með kærasta sínum Steinari Erni Gunnarssyni, þann 12. október síðastliðinn. Guðrún deildi mynd af drengnum sem parið eignaðist á Instagram. Draumadrengurinn mætti með hraði. Fyrir á parið eina dóttur sem fæddist árið 2020.

Leikkonan María Birta Bjarnadóttir og eiginmaður hennar, listamaðurinn Elli Egilsson urðu foreldrar á árinu. María Birta tilkynnti það óvænt í viðtali við Vísi í október þegar hún sagði að eiginmaður hennar væri „besti pabbinn í öllum heiminum“.  Af samfélagsmiðlum að dæma vissu ekki margir að hjónin hefðu átt von á barni, fyrr en María Birta birti mynd af sér með barnavagn. Þau eignuðust stúlku og er hún þeirra fyrsta barn.

Anna Fríða Gísladóttir forstöðumaður markaðsmála hjá Play og kærasti hennar, Sverrir Falur Björnsson, eignuðust barn 5. nóvember. Fyrir áttu þau son sem fæddur er árið 2019.

Tónlistarmaðurinn vinsæli Flóni varð faðir á árinu. Hann greindi frá þessum gleðitíðindum á Instagram síðu sinni. Flóni og og kærasta hans Hrafnkatla Unnarsdóttir eignuðust dreng 11. nóvember sem fékk nafnið Benjamín. 

Tónlistarkonan Greta Salóme Stefánsdóttir eignaðist sitt fyrsta barn ásamt unnusta sínum, Elvari Þór Karlssyni. Drengurinn kom í heiminn 24. nóvember, fjórum vikum fyrir settan dag.

Fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir og sambýlismaður hennar, listamaðurinn Arnar Ásgeirsson, eignuðust stúlku. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman en fyrir á Þóra eina dóttur.

Þóra greindi frá þessu á Instagram-síðu sinni. Við mynd af dótturinni skrifar hún: 

„Við kynnum með stolti; fullkomið stúlkubarn❤️.“

Athafnahjónin Magnús Scheving og Hrefna Björk Sverrisdóttir eignuðust son á þeim flotta degi 12.12. Drengurinn er þeirra fyrsta barn saman en parið hefur verið saman í um átta ár. Magnús á þrjú börn fyrir og Hrefna eina dóttur.

„Öllum heilsast vel … nema kannski hundinum sem er hundfúll,“ skrifaði Hrefna þegar hún tilkynnti um komu drengsins.

Samfélagsmiðlastjarnan Katrín Edda Þorsteinsdóttir eignaðist dóttur með eiginmanni sínum Markus Bande. Stúlkan, sem er þeirra fyrsta barn, fæddist þann 17. desember í Þýskalandi þar sem fjölskyldan er búsett. Katrín Edda leyfði fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast öllu ferlinu, allt frá því hún hóf meðferð við ófrjósemi, alveg fram að verstu hríðunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×