Lífið

Stjörnu­lífið: Jóla­undir­búningur, kvik­mynda­verð­laun og rómantík í desember

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.

Jólaundirbúningur setti sinn svip á vikuna sem leið. Þá fylltist Harpa af prúðbúnum gestum Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem að þessu sinni voru afhent á Íslandi.


Félagarnir Auddi og Sveppi brostu breitt á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum en myndin Leynilögga var tilnefnd sem besta gamanmyndin. Félagarnir minntust þess hve langt þeir væru komnir síðan þeir drukku ógeðisdrykki á sjónvarpsskjáum landsmanna.

Leikkonan María Birta hlakkar til jólanna í faðmi fjölskyldunnar. Hún og eiginmaður hennar, listamaðurinn Elli Egilsson eignuðust nýverið dóttur og verða þetta þeirra fyrstu jól sem þriggja manna fjölskylda.

Svala Björgvins undirbýr sig fyrir Jólagesti Börgvins sem fara fram næstu helgi.

Rúrik Gíslason nældi sér í D vítamín á sínum uppáhaldsstað, Miami. 

Leikkonan Íris Tanja er þakklát fyrir lífið og sagði sálufélaga sinn, tónlistarkonuna Elínu Ey, vera stærstu verðlaunin sem lífið hefur gefið henni.

Tónlistarmaðurinn og Idol dómarinn Herra Hnetusmjör birti mynd af sér ásamt útvarpsmanninum Ívari Guðmunds. Í vikunni gaf Herra Hnetusmjör út lagið Cashmere draumur ásamt kollega sínum úr Idolinu, Birgittu Haukdal.

Raunveruleikastjarnan Sunneva Einars geislaði í silfurlituðum kjól í afmæli hjá vinkonu sinni.

Birgitta Haukdal mætti á kósýkvöld rithöfunda í Ásmundarsal. Félagsskapurinn var ekki af verri endanum, því með henni voru þau Ragnar Jónasson, Auður Ava, Yrsa Sigurðardóttir og Snæbjörn Arngrímsson.

Athafnakonan og jólabarnið Camilla Rut dró nýja kærastann, Valla flatböku, með sér að sjá Jólalestina. Parið byrjaði saman fyrir nokkrum mánuðum síðan en þetta er með fyrstu paramyndum sem Camy deilir á Instagram síðu sinni.

Katrín Jakobsdóttir heldur aðventuna hátíðlega á þinginu.

Samfélagsmiðlastjarnan Lil Curly tók þátt í Lensa-æðinu eins og svo margir aðrir. Fjallað var um þetta nýja æði sem skekur nú landann í kvöldfréttum Stöðvar 2 um helgina.

Gleðigjafinn Felix Bergsson lét sig ekki vanta á Evrópsku kvikmyndaverðlaunin. Hann var ánægður með kvöldið og segir Ísland nú vera tilbúið að halda ennþá stærri viðburði.

Tónlistarkonan og Idol dómarinn Bríet skellti sér í myndatöku fyrir varning sem hún mun brátt byrja að selja.

Athafnakonan Birgitta Líf var svöl á Langjökli. 

Sminkan og hlaupadrottningin Rakel María Hjaltadóttir fór í sitt fínasta púss. Af því tilefni dró hún fram hringljósið og stillti sér upp fyrir mynd.

Friðrik Ómar ferðaðist til Akureyrar þar sem hann hélt jólatónleika sína Heima um jólin. Ásamt honum komu meðal annars fram þeir Kristján Jóhannsson, Eyþór Ingi og Jógvan.

Tískubloggarinn Elísabet Gunnars sótti sér orku úr náttúrunni.

Ofurhlauparinn Mari Jaersk flúði desember kuldann og nýtur lífsins á Tenerife.

Bubbi Morthens fór í ræktina og stillti sér upp í nýja svitagallanum sínum.

Leikkonurnar Júlíana Sara og Vala Kristín fögnuðu sérstökum jólaþætti af Venjulegu fólki, ásamt þeim Fannari Sveinssyni og Karen Björgu.

Vinkonurnar Áslaug Arna og Nanna Kristín geisluðu á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum.

Samfélagsmiðlastjarnan Hildur Sif hélt upp á afmælið sitt í London þar sem hún er búsett.

Fegurðardrottningin og lífsþjálfinn Linda Pétursdóttir ræddi við fylgjendur sína um mikilvægi þess að rækta framtíðarsjálfið. Linda sagði nýverið frá því að hún væri tilbúin að hitta góðan mann og opna fyrir ástinni á ný.

Söngdívan Sigga Beinteins stillti sér upp með tveimur öðrum dívum, þeim Friðriki Ómari og Jógvan.

Leikkonunni Kristínu Péturs var kalt á toppnum.

Eva Laufey Kjaran þakkar fyrir góðar viðtökur á kökudeiginu sem hún sendi frá sér fyrir þessi jól en það er nú uppselt hjá framleiðanda. Eva situr ekki auðum höndum því hún er strax farin að huga að næstu jólum, ekki seinna vænna.

Förðunarfræðingurinn og TikTok stjarnan Embla Wigum naut lífsins í London.

Þessa dagana er söngkonan Eivör Pálsdóttir á tónleikaferðalagi um Evrópu. Í vikunni hélt hún tónleika í Slóveníu, Frankfúrt og Mílanó.

Ljósmyndarinn og bloggarinn Helgi Ómarsson fór í hesthúsið.

Skemmtikrafturinn Eva Ruza var í sannkölluðu jólaskapi.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: „Sá sem spottar bjórflöskuna fyrst fær fimmhundruð kall“

Stór tímamót eins og afmæli og edrú afmæli fengu að njóta sín á Instagram síðustu daga. Íslendingar virðast vera orðnir spenntir fyrir jólunum enda fyrsti í aðventu á sunnudaginn. Jólaseríur, skraut og einstaka jólatré eru meira að segja byrjuð að skjóta upp kollinum á samfélagsmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×