Innlent

Þrjú og hálft ár fyrir að hafa þrí­­­höfuð­­­kúpu­­brotið vinnu­fé­laga

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Maðurinn kom aftan að samstarfsfélaga sínum og sló hann fyrirvaralaust með klaufhamri.
Maðurinn kom aftan að samstarfsfélaga sínum og sló hann fyrirvaralaust með klaufhamri. Vísir/Arnar

Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann sló tvo vinnufélaga sína með hamri í júní síðastliðnum og annar þeirra þríhöfuðkúpubrotnaði. Ákæruvaldið fór fram á fimm ára fangelsi.

Mbl.is greinir frá því að manninum hafi verið gert að greiða brotaþolunum tveimur skaðabætur, öðrum þeirra 2,1 milljón og hinum 400 þúsund krónur. Farið var fram á nokkuð hærri bætur samkvæmt dómkröfum; annars vegar fimm milljónir og hins vegar þrjár. 

Manninum var einnig gert að greiða sakarkostnað upp á 1,4 milljón.

Hinn 17. júní síðastliðinn voru tveir fluttir á sjúkrahús og einn handtekinn úr hópi byggingarverkamanna sem voru við vinnu við hús á Seltjarnarnesi. Lögregla mætti á svæðið með mikinn viðbúnað, en samkvæmt upplýsingum frá henni hafði komið upp ágreiningur sem endaði með því að bareflum var beitt, áður en aðrir vinnufélagar mannanna skárust í leikinn.

Ákæra sem var í tveimur liðum var gefin út í september á þessu ári.

Fyrst var maðurinn ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa komið aftan að samstarfsfélaga sínum, sem sat fyrir utan húsið sem var í byggingu, og fyrirvaralaust slegið hann ítrekað með klaufhamri og jarðhaka í höfuð og búk. Maðurinn þríhöfuðkúpubrotnaði við árásina og hlaut þar að auki eymsl á brjóstkassa, mar og bólgur víðsvegar á líkamanum og brot hægra megin á rifbeinum.

Í öðrum ákærulið var maðurinn ákærður fyrir aðra tilraun til manndráps, en til vara sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa komið aftan að öðrum vinnufélaga og fyrirvaralaust slegið hann í höfuðið með klaufhamri, aftan á hvirfilinn rétt við hálsinn, þannig að maðurinn hlaut skurð aftan við vinstra eyra.

Þekkti manninn lítið sem ekkert

Viku eftir árásina ræddi DV við annað fórnarlambanna, hinn 41 árs gamla Omar Alrahman frá Írak. Það var hann sem þríhöfuðkúpubrotnaði.

Í viðtalinu við DV sagðist hann hafa flutt til Íslands í nóvember 2020, og að hann hefði talið sig hafa fundið friðsælasta stað á jarðríki. Þá sagðist hann varla hafa þekkt manninn sem nú er ákærður fyrir að hafa ráðist á hann, og að þeir hefðu ekki átt í neinum útistöðum hvor við annan. Þeir hafi einfaldlega verið samstarfsélagar.

Hann lýsir aðdraganda árásarinnar, sem hafi orðið þegar hann var að huga að dekki á bílnum sínum, á þessa leið:

„Vinur minn var að hjálpa mér eitthvað með dekkið. Ég beygði mig niður. Ég sá að einhver gekk aftur fyrir mig. Svo man ég ekki neitt þar til ég vakna allt í einu á spítalanum. Ég spurði: Hvað gerðist eiginilega?“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×