Peterrr plaffaði niður Blikana í öruggum sigri Þórs

Snorri Rafn Hallsson skrifar
peterrr

Þórsarar hafa verið á miklu flugi undanfarið og skotið sér upp á toppinn. Breiðablik hefur verið um miðju töflunnar og hafði betur gegn SAGA í Nuke í síðustu umferð.

Leikur Þórs og Breiðabliks fór fram í Mirage kortinu sem hentar varnarliðinu betur og var það Breiðablik sem fékk að byrja í vörn eftir að Furious tryggði þeim hnífalotuna.

Þór fór hins vegar vel af stað í sókninni, vann skammbyssulotuna og næstu tvær loturnar eftir það gegn klaufalegum Blikum. Fyrsta stig Breiðabliks kom á bakinu á þrefaldri fellu frá Lillehh en liðinu tókst ekki að tengja lotur saman og byggja upp góðan banka.

Minidegreez sótti skemmtilegar opnanir á vappanum sem Þórsarar gátu fylgt eftir hratt og af miklum krafti. Blikum tókst að næla sér í lotur hér og þar en Þórsarar voru einfaldlega miklu betri og Peterrr tók hressilega við sér undir lok hálfleiksins.

Staða í hálfleik: Þór 10 – 5 Breiðablik

Staðan var álitleg fyrir Þór þegar síðari hálfleikurinn fór af stað, en hann spilaðist svipað og sá fyrri. Ef Minidegreez var allt í öllu í þeim fyrri var það Peterrr sem átti þann síðari. Fyrstu loturnar fóru til Þórs þar sem leikmenn Breiðabliks voru óákveðnir í aðgerðum sínum.

Þó Blikum hefði tekist að tengja tvær lotur og senda Þór í spar var leikurinn aldrei í hættu og átti J0n heiðurinn af því að klára sparlotuna með fellu á Furious og tryggja stöðu Þórs á toppi deildarinnar.

Lokastaða: Þór 16 – 8 Breiðablik

Næstu leikir liðanna:

  • Fylkir–Breiðablik, þriðjudaginn 8. nóv, kl. 19:30
  • Dusty–Þór, fimmtudaginn 10. nóv, kl. 21.30

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Blikarnir burstuðu SAGA

Breiðablik var á hraðleið upp stigatöfluna þegar liðið tók á móti SAGA í Nuke.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira