Sport

Dagskráin í dag: Lokaumferð Bestu-deildarinnar, ítalski boltinn, golf, NBA og ACB

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Breiðablik fær nýja skjöldinn afhentan í dag.
Breiðablik fær nýja skjöldinn afhentan í dag. Vísir/Hulda Margrét

Það verður nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag, en alls verður boðið upp á 14 beinar útsendingar á þessum flotta laugardegi.

Besta-deild karla í knattspyrnu tekur mikið pláss í dag og við hefjum leik klukkan 12:30 á Stöð 2 Sport þar sem sérfræðingar Stúkunnar verða á svæðinu og fylgjast með öllum leikjum dagsins í svokölluðum Red Zone þætti.

Beinar útsendingar frá leikjum dagsins hefjast svo klukkan 12:50 þar sem lokaumferðin fer öll fram á sama tíma. KR tekur á móti Stjörnunni á Stöð 2 Sport 2 og Víkingur heimsækir nýkrýnda Íslandsmeistara Breiðabliks á Stöð 2 Sport 4. Leikir Keflavíkur og Fram, ÍBV og Leiknis, og FH og ÍA verða svo sýndir á hliðarrásum Bestu-deildarinnar.

Stúkan verður svo á sínum stað á Stöð 2 Sport klukkan 20:00 þar sem farið verðu yfir alla leiki dagsins.

Þá eru þrír leikir í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á dagskrá í dag, en klukkan 12:50 hefst bein útsending frá viðureign Napoli og Sassuolo á Stöð 2 Sport 3.

Klukkan 15:50 taka Þórir Jóhann Helgason og félagar hans í Lecce svo á móti stórliði Juventus á Stöð 2 Sport 2 áður en Sampdoria heimsækir Inter klukkan 18:35 á sömu rás.

Golfið er einnig á sínum stað í dag og klukkan 12:30 hefst bein útsending á Stöð 2 Sport 5 frá þriðja keppnisdegi Portugal Masters á DP World Tour áður en Bermuda Championship á PGA-mótaröðinni tekur við klukkan 17:30.

Körfuboltinn lætur sig ekki vanta, en klukkan klukkan 18:35 hefst bein útsending frá viðureign Gran Canaria og Lanovo Tenerife í spænsku ACB-deildinni á Stöð 2 Sport 3 og klukkan 22:00 hefst bein útsending frá viðureign Sacramento Kings og Miami Heat í NBA-deildinni á Stöð 2 Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×