„Ætlum líka að vera Evrópumeistarar, það er alveg á hreinu“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. september 2022 08:01 Róbert Aron fór mikinn gegn Aftureldingu. Vísir/Hulda Margrét Róbert Aron Hostert fór í öxl í október á síðasta ári. Hann virðist hafa náð fyrri styrk en hann skoraði tólf þegar Valur vann nauman sigur á Aftureldingu, 25-24, í Olís deild karla á dögunum.
Róbert Aron hefur ekki skorað meira í einum og sama leiknum fyrir Valsmenn síðan hann gekk í raðir félagsins árið 2018. „Þetta er náttúrulega búið að vera fínt upp á síðkastið, þurfti reyndar að fara í sprautu eftir aðgerðina. Þetta er búið að haldast þokkalega eftir það, samt búið að vera pínu eltingaleikur. Kannski hvíla aðeins og er ekki mikið að skjóta á æfingum. Vel bardagana, leiki og þess háttar. Hægt og rólega núna lítur þetta vel út,“ sagði Róbert Aron er hann ræddi við Guðjón Guðmundsson, Gaupa, um stöðu mála. „Alltaf eftir aðgerðir, sama hvernig er. Sérstaklega svona axlaraðgerð, í handbolta. Er erfitt og tekur tíma að jafna sig,“ sagði Róbert Aron um endurhæfinguna. Hefur Róbert Aron verið í betra standi síðan hann skrifaði undir á Hlíðarenda? „Ekki síðan ég kom til Vals held ég. Það er hrikalega vel æft hérna og Snorri (Steinn Guðjónsson, þjálfari) mikið að hlaupa. Maður er í ágætis standi þar en auðvitað má vera í betra standi, maður er aldrei nógu ánægður með sjálfan sig.“ Klippa: Segir Valsmenn ætla að vinna alla titla sem í boði eru Valur vann þrefalt á síðustu leiktíð og hefur unnið sjö titla í röð. Er pressan að utan eða setur liðið sjálft á sig pressu? „Þetta er gaman og forréttindi að fá að vinna. Þess vegna verðum við ekkert saddir, þetta venst vel. Nú er bara að spýta í lófana og halda áfram. Við erum ekkert hættir núna.“ „Er ekki eðlilegt að það sé pressa á liði sem vinnur þrefalt og hefur unnið sjö titla í röð? Ætli við setjum líka meiriháttar pressu á okkur sjálfa, við ætlum líka að vera Evrópumeistarar – það er alveg á hreinu,“ bætti Róbert Aron við og glotti.
Handbolti Olís-deild karla Valur Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira