Stofnaði fatalínu fyrir golfara landsins: „Sniðugt að líta út eins og maður geti eitthvað í klúbbhúsinu“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. ágúst 2022 10:00 Styrmir Erlendsson er á bakvið fatamerkin Brutta Faccia og Brutta Golf. Brutta/Einkasafn Nafnið Styrmir Erlendsson kveikir ef til vill ekki á mörgum bjöllum nema fólk sé úr Árbænum eða hafi fylgst gríðarlega vel með neðri deildum íslenskrar knattspyrnu undanfarin ár. Styrmir er þó að skapa sér nafn í öðrum geira þessa dagana en hann er á bakvið íslenska golfmerkið Brutta Golf.
Um er að ræða íslenskt fatamerki sem var stofnað í ár, 2022. Merkið kemur í raun undan Brutta Faccia sem hefur hannað „streetwear“ vörur frá árinu 2018. Flíkurnar hannar Styrmir en hann er í dag nemi við Listaháskóla Íslands þar sem hann lærir grafíska hönnun. Það segir sig kannski sjálft en hann hefur mikinn áhuga á golfi, sá áhugi er hins vegar tiltölulega nýtilkominn. „Golfið byrjaði að kitla mann 2015 en þá var maður enn í fótbolta og minni tími fyrir golfið. Ég myndi segja að ég hafi farið í þetta af krafti sumarið 2021. Ég er að sjálfsögðu líka á golfvellinum en ég er ekki að gera neinar gloríur þar. Þá er einmitt sniðugt að vera flott klæddur og líta út eins og maður geti eitthvað í klúbbhúsinu.“ View this post on Instagram A post shared by Brutta Golf (@bruttabfg) Brutta Golf hefur þá sérstöðu að vera fyrsta íslenska golfmerkið sem kemur á markað. Helsta markmið merkisins er að hanna hágæða golffatnað sem hentar íslenskum veðurskilyrðum. Styrmir segir að mikið hafi verði lagt upp úr því að hanna vörur úr gæðaefni sem þó sé hægt að selja á sanngjörnu verði. Einnig er merki Brutta Golf stílhreint og ætti að henta flestum kylfingum, allt frá byrjendum yfir í atvinnumenn. Auk þess er hægt að nota flíkurnar í annað, eins og til dæmis aðrar íþróttir, útivist, áhugamál eða jafnvel bara til að vera í dagsdaglega. Aron Jóhannsson, leikmaður Vals í Bestu deild karla og fyrrum atvinnumaður í fótbolta.Brutta Golf Styrmir hóf ferilinn með Fylki og skoraði meðal annars frægt mark í 3-2 tapi gegn KR er síðarnefnda liðið varð Íslandsmeistari árið 2011. Síðan þá hefur hann aðallega spilað með ÍR sem og öðru liðum enn neðar í fótboltapíramídanum hér á landi. Styrmir myndi ekki slá hendinni á móti því að hanna fótboltabúninga þegar fram líða stundir. „Það hefur ekkert enn komið upp en það væri virkilega gaman að hanna búninga á eitthvað lið. Það var mjög gaman til dæmis að gera mætingargalla meistaraflokk Fylkis.“ Nýju mætingargallar Fylkis (mfl kk) - collaboration með mínu merki Brutta Faccia pic.twitter.com/6QzaQS1yoH— Styrmir Erlendsson (@Styrmir13) May 20, 2021 Til að koma merkinu enn frekar á framfæri þá var Brutta Open haldið á golfvelli GKG þann 15. júlí síðastliðinn. Mæting var framar vonum en mótið fylltist fljótt, alls mættu 90 kylfingar til leiks á mótinu þar sem vörurnar voru meðal annars til sölu. Þá var Halldór Viðar Gunnarsson klæddur vörum frá Brutta Golf á Íslandsmótinu sem fram fór í Vestmannaeyjum nýverið. Var hann að keppa í meistaraflokki í fyrsta skipti. Halldór Viðar í Eyjum.Úr einkasafni Að endingu var Styrmir spurður út í það hvort fatahönnun væri hans helst ástríða í dag eða hvort fótboltinn ætti enn sitt pláss. „Fatahönnun er vissulega áhugaverð en ég og saumavélin eigum lítið saman. Ég læt aðra um það en grafíkin er það sem ég pæli mikið í. Það er rosa gaman að fá prufur, laga og breyta og sjá svo loka útkomuna klára. Fótboltinn er annars alltaf ofarlega hjá manni, ég fylgist mikið með og er kominn með sjúklega breitt bak enda harður stuðningsmaður Everton og Fylkis.“
Golf Fótbolti Tíska og hönnun Tímamót Íslandsmótið í golfi Mest lesið Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Handbolti Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Körfubolti „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Handbolti Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Íslenski boltinn Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Í beinni: Fulham - Manchester City | Lykilleikur í toppbaráttunni Enski boltinn Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð Körfubolti Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti Fleiri fréttir Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Tiger og Rory fá rosalega hollustubónusa Rory McIlroy fordæmir falsfrétt „Hann hefur sjokkerað allan heiminn“ Fær miklu meira borgað fyrir sigur á Masters í ár en fyrir tveimur árum „Með betri stjórn á tilfinningunum mínum en nokkurn tímann áður“ Scheffler í sérflokki á Masters Ekkert fær Scheffler stöðvað Tiger Woods spilar samhliða áhugamanni eftir erfiðan gærdag Degi þrjú lokið: Scheffler enn á toppnum þrátt fyrir tvöfaldan skolla Scheffler efstur á meðan Woods fellur neðar og neðar Reiddist áhorfendum eftir þrefaldan skolla: „F**k off“ Þrír á toppnum eftir dag tvö Metið innan seilingar hjá Tiger Woods Tiger þarf að spila 23 holur í dag Útsendingin frá Mastersmótinu byrjar 11.45 í dag Danski tvíburinn sló óvænt í gegn fyrir myrkur „Það verður hátíð næstu daga“ Það sem þú þarft að vita fyrir Masters mótið sem byrjar í dag Líklegastur til að vinna en vill frekar vera viðstaddur fæðinguna McIlroy upp með sér vegna orða Tigers Bernard Langer frestar kveðjustundinni á Masters um eitt ár Ofurtölvan hefur litla trú á Rory McIlroy á Mastersmótinu Neitar að gefast upp en bætir líklega ekki við glæsta ferilskrá Tiger setur met ef hann nær niðurskurðinum á Masters Tiger skrúfar fyrir allt kynlíf Fékk aðstoð frá fyrrum þjálfara Tigers en besta ráðið kom frá dótturinni Sjá meira