Fótbolti

„Þetta eru leikmenn sem vilja bara vinna og það skapar ákveðnar kröfur“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þorsteinn Halldórsson ræðir við Dagnýju Brynjarsdóttur á æfingu íslenska landsliðsins.
Þorsteinn Halldórsson ræðir við Dagnýju Brynjarsdóttur á æfingu íslenska landsliðsins. Vísir/Vilhelm

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, vildi leggja áherslu á jákvæðu hlutina eftir að hafa fengið að melta jafnteflisleikinn á móti Belgum á EM í Englandi.

„Það er margt sem við getum tekið jákvætt út úr þessu. Það sem við lítum líka jákvætt á þetta er að við höfum enn þá stjórna á aðstæðum. Við stýrum því sjálf hversu langt við förum í þessum riðli og hvað við gerum í næsta leik,“ sagði Þorsteinn Halldórsson.

Eftir æfinguna á mánudaginn sem snerist að mestu um endurheimt leikmanna sem spiluðu mikið á móti Ítalíu og að koma blóðinu á hreyfingu hjá þeim sem spiluðu minna. Í framhaldinu fór hópurinn að einbeita sér að verkefninu á móti Ítalíu.

„Ég er sáttur við margt. Það var gífurleg vinnusemi í þeim og miðjumennirnir hlupu hrikalega mikið. Þær gerðu Belgunum erfitt fyrir í því sem þær eru góðar í sem er að halda boltanum og finna ákveðin svæði. Það voru ekki mörg móment sem þær sköpuðu eitthvað í gegnum eitthvað spil,“ sagði Þorsteinn.

„Einu hætturnar voru þegar við töpuðum boltanum á slæmum stað. Að öðru leyti náðu þær ekki upp neinu spili á móti okkur og náðu ekki að ógna okkur þannig nema kannski eftir smá klaufagang hjá okkur,“ sagði Þorsteinn.

„Heilt yfir var ég mjög sáttur við leikinn og auðvitað hefðum við viljað vinna þennan leik miðað við það hvernig hann þróaðist. Stig er alltaf betra en ekkert og við stjórnum alla vega framhaldinu eins og er,“ sagði Þorsteinn.

Hann segir að stelpurnar setji ekki síður kröfur á þjálfarateymið en þeir á þær.

„Þetta eru keppnismanneskjur og auðvitað voru þær fúlar og svekktar að hafa ekki klárað þetta. Þetta eru leikmenn sem vilja bara vinna. Það er gott að vera í svoleiðis hóp og skapar ákveðnar kröfur. Þær setja kröfur á sjálfa sig og setja ákveðnar kröfur á okkur,“ sagði Þorsteinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×