Körfubolti

Vill sjá fullan Ólafssal er Holland kemur í heimsókn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason í leik gegn Ítalíu.
Tryggvi Snær Hlinason í leik gegn Ítalíu. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

„Maður tók eina góða viku fyrir norðan áður en maður kom hingað og byrjaði aftur með strákunum. Maður getur ekki kvartað, svo tekur maður júlí frekar. Er það ekki betri mánuður,“ spurði landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason kíminn en hann er einn af máttarstólpum íslenska landsliðsins í körfubolta sem mætir Hollandi annað kvöld.

Ísland mætir Hollandi í undankeppni HM 2023 í Ólafssal í Hafnafirði annað kvöld. Vísir ræddi við leikmenn liðsins fyrir leik morgundagsins.

„Kannski erfitt að segja sáttur en þetta var mjög langur og erfiður vetur. Persónulega gekk svipað vel og gekk hjá liðinu í heild. Svo nei ég get ekki sagt að ég sé sáttur en í lokin náðum við að halda okkur uppi í ACB (spænsku úrvalsdeildinni) og það var það fyrsta sem mátti ekki klikka. Er vongóður fyrir næsta ár og við sjáum til hvernig við munum raða saman liðinu á næsta ári. Er bara spenntur að sjá hvað mun gerast,“ sagði hinn 24 ára gamli Tryggvi Snær um nýafstaðið tímabil en hann spilar með Zaragoza á Spáni.

„Ég er með samning út næsta ár þannig ég verð þarna næsta árið og svo sjáum við til hvernig samningsviðræður fara.“

Klippa: Vonast til að Ólafssalur verði fullur er Hollendingar mæta í heimsókn

Um komandi landsleik

„Holland er mjög gott heilt yfir, sterka stóra menn og minni menn sem eru með punkta í höndunum. Þurfum að reyna stoppa það en á sama tíma eru þeir opnir í vörn, ég held að við getum alveg – á meðan við erum duglegir að færa boltann – refsað þeim í sókninni. Þurfum að vera harðir á móti þeim, berjast í vörn eins og ávallt og gáfaðir í sókninni.“

„Ég hef fulla trú. Ég veit að stór partur af fjölskyldunni minni að fara mæta. Reikna með að fólk mæti og reyni að halda upp sömu stemningu og gegn Ítalíu,“ sagði Tryggvi Snær að endingu.

Leikur Íslands og Hollands hefst klukkan 20.00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×