Innlent

Hall­dór Jónatans­son er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Halldór gegndi stöðu forstjóra Landsvirkjunar á árunum 1983 til ársloka 1998.
Halldór gegndi stöðu forstjóra Landsvirkjunar á árunum 1983 til ársloka 1998. Aðsend

Halldór Jónatansson, lögfræðingur og fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar, er látinn, níutíu að aldri. Hann lést á miðvikudaginn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjölskyldu Halldórs, sem gegndi stöðu forstjóra Landsvirkjunar á árunum 1983 til ársloka 1998.

„Halldór fæddist í Reykjavík 21. janúar 1932, sonur Sigurrósar Gísladóttur, húsmóður og Jónatans Hallvarðssonar, hæstaréttardómara. Halldór lauk stúdentsprófi frá MR 1951, lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1956, MA-prófi í alþjóðafræðum frá Fletcher School of Law and Diplomacy í Bandaríkjunum. Hann fékk réttindi sem héraðsdómslögmaður 1963.

Halldór starfaði sem fulltrúi hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1957 og hjá viðskiptaráðuneytinu 1957-1962 og deildarstjóri 1962-1965. Hann var ráðinn skrifstofustjóri Landsvirkjunar þegar fyrirtækið var stofnað árið 1965 og gegndi því starfi til 1971 þegar hann varð aðstoðarforstjóri. Halldór var síðan forstjóri Landsvirkjunar frá 1983 til ársloka 1998.

Halldór var ritari stóriðjunefndar 1961-64, varaformaður Sambands íslenskra rafveitna 1983-1985 og síðar Samorku til 1999. Hann sat í stjórn NORDEL, Samtaka forstöðumanna raforkufyrirtækja á Norðurlöndunum 1983-1999, í stjórn landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins á Íslandi 1983-1991 og í stjórn Markaðsskrifstofu iðnðarráðuneytisins og Landsvirkjunar 1995-1998. Þá sat hann í stjórn Fjárfestingarstofunnar frá 1998 og var stjórnarformaður Hollvinasamtaka lagadeildar HÍ 1999-2002. Að auki átti hann sæti í ýmsum nefndum um orkumál og stóriðjuverkefni. Hann ritaði fjölda greina um orkumál í blöð og tímarit. Halldór var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1970 fyrir störf í þágu framkvæmda við Búrfellsvirkjun og álversins í Straumsvík.

Eiginkona Halldórs var Guðrún Dagbjartsdóttir, fulltrúi. Hún lést 29. nóvember árið 2020. Þau eiga fjórar dætur, 9 barnabörn og 2 barnabarnabörn.

Dætur þeirra eru Dagný rafmagnsverkfræðingur, Rósa tölvunarfræðingur, Jórunn byggingarverkfræðingur og Steinunn innanhússarkitekt,“ segir í tilkynningunni frá fjölskyldu Halld.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×