Menning

Snípur og sjálfs­fróun á Kjarvals­stöðum

Árni Sæberg og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa
Í bakgrunni má sjá verk Kristins G. Harðarsonar um flugdólga og verk Kristínar Gunnlaugsdóttur sem sýnir konu stunda sjálfsfróun.
Í bakgrunni má sjá verk Kristins G. Harðarsonar um flugdólga og verk Kristínar Gunnlaugsdóttur sem sýnir konu stunda sjálfsfróun. Stöð 2/Sigurjón

Listamenn sem tekið hafa ástfóstri við nál og tvinna opnuðu í kvöld listasýningu á Kjarvalsstöðum, meðal efnistaka þeirra eru snípurinn, sjálfsfróun og flugdólgar.

Sýningin Spor og þræðir var opnuð á Kjarvalsstöðum í kvöld en það er sýning á verkum íslenskra samtímalistamanna sem sauma út eða nýta nál og þráð sem verkfæri við listsköpun sína. Þau líta ýmist til fortíðar og vinna með arfleifð handverks og hefðar, eða nýta nálina til þess að prófa sig áfram í framsæknum tilraunum í bland við aðra miðla, að því er segir á vef Listasafns Reykjavíkur.

Fréttamaður okkar leit við á Kjarvalsstöðum í kvöld og tók listamenn tali.

Listamaðurinn Kristín Gunnlaugsdóttir sýnir útsaumsverk sem hún býr til með íslenskri ull sem hún saumar stórum sporum í kartöflustriga sem hún keypti í Garðheimum.

„Þau gerast nú varla feminískari. Þarna er sjálfsfróun og svo er hér sköp og snípur. Þetta fannst mér kjörið myndefni sem hannyrðakona í ljósi hefðarinnar sem konurnar hafa skýlt sér við, að gera svona pen lítil verk á þili og nettar krosssaumsmyndir, sem eru frábærar. En á þessum tíma langaði mig að koma með stór verk um myndefni sem ættu alls ekki heima í stofu og hannyrðakona heimilisins mætti ekki sýna,“ segir hún.

Kristinn G. Harðarson sýnir fimm verk sem byggja á dagbók sem hann hefur haldið í lengri tíma.

„Þessar myndir myndgera þennan texta, þessi texti er um allt og ekkert, eitthvað sem ég upplifi og eitthvað úr fjölmiðlum,“ segir Kristinn.

Sem dæmi tekur hann mynd um flugdólga sem honum þykir skemmtilega leiðinlegir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×