Skoðun

Frum­kvöðlar frá fyrsta degi

Bogi Nils Bogason skrifar

Í dag fagnar Icelandair 85 ára afmæli. Við þessi tímamót er gaman að staldra við og í senn líta yfir farinn veg og til framtíðar. Að mínu mati er rauði þráðurinn í gegnum alla söguna einstakur kraftur og ástríða starfsfólks og sá mikli frumkvöðlaandi sem einkennt hefur félagið alla tíð og gerir enn. Við höfum haldið merkjum Íslands á lofti um allan heim í áratugi og ætlum að láta til okkar taka í framtíðarþróun flugs.

Rætur félagsins má rekja til ársins 1937 þegar Flugfélag Akureyrar var stofnað sem síðar varð Flugfélag Íslands og sameinaðist Loftleiðum. Einstakir frumkvöðlar unnu þrekvirki á fyrstu dögum flugsins, Loftleiðaævintýrið var engu líkt og vert er að minnast þeirra merku tímamóta í íslenskri flugsögu þegar fyrstu flugin voru flogin yfir Atlantshafið árið 1944.

Svo hófst tímabil uppbyggingar þar sem leiðakerfi félagsins með Ísland sem okkar heimahöfn var fest í sessi. Leiðakerfið er hjartað í okkar starfsemi og grundvöllur öflugra tenginga til, frá, um og innan Íslands. Það er jafnframt forsenda þess að við gátum byggt upp öfluga ferðþjónustu hér á landi. Þar vorum við í fararbroddi þar sem við fjárfestum í innviðum og nýsköpun og byggðum upp hágæða hótel um allt land. Þetta hefði ekki verið hægt nema fyrir frábært starfsfólk og uppbyggingu okkar góða vinnustaðar. Með þessu höfum við lagt okkar af mörkum til íslensks samfélags og efnahags.

Við erum á fleygiferð til framtíðar. Flugsamgöngur tengja okkur við umheiminn og stuðla að framþróun lands og þjóðar. Við höfum sett okkur metnaðarfull markmið þegar kemur að aukinni sjálfbærni í flugi og trúum því að orkuskipti í flugi muni skapa ný tækifæri fyrir Ísland sem miðstöð umhverfisvæns flugs á Norður-Atlantshafi.

Við höfum verið frumkvöðlar frá 1937 og hlökkum til næstu 85 ára.

Höfundur er forstjóri Icelandair.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×