Innherji

Lítið um innlausnir fjárfesta úr sjóðum þrátt fyrir verðhrun á mörkuðum

Hörður Ægisson skrifar
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 3,8 prósent í apríl en frá áramótum hefur hún fallið um tæplega fimmtung.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 3,8 prósent í apríl en frá áramótum hefur hún fallið um tæplega fimmtung. VÍSIR/VILHELM

Annan mánuðinn í röð minnkuðu fjárfestar við stöðu sína í innlendum hlutabréfasjóðum og blönduðum sjóðum en hreint útflæði úr þeim var samanlagt tæplega 900 milljónir króna í apríl.

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins, sem hafa einkennst af miklum verðlækkunum á mörkuðum, hafa fjárfestingar í slíkum verðbréfasjóðum nánast staðið í stað borið saman við uppsafnað innflæði upp á 25 milljarða króna á sama tímabili í fyrra.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðlabanka Íslands um eignir verðbréfasjóða, sem birtust í morgun, en innlausnir fjárfesta í blönduðum sjóðum voru um 1.560 milljónir króna umfram fjárfestingar þeirra í þeim sjóðum. Á móti var hins vegar nettó innflæði í hlutabréfasjóði upp á 666 milljónir króna.

Hlutabréfamarkaðir beggja vegna Atlantshafsins hafa lækkað skarpt síðustu vikur vegna ótta fjárfesta um versnandi hagvaxtarhorfur samtímis því að helstu seðlabankar heimsins þurfa að hækka vexti hraðar og meira en áður var búist við til að stemma stigu við ört hækkandi verðbólgu. Íslenski markaðurinn hefur ekki farið varhluta af þessari þróun og Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 3,8 prósent í apríl en frá áramótum hefur hún fallið um tæplega fimmtung.

Eignir hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða drógust lítillega saman í liðnum mánuði samtímis verðfalli á mörkuðum – úr samtals 236 milljörðum í 231 milljarð króna – en eignarhald almennings á hlutdeildarskírteinum í slíkum sjóðum nemur tæplega helmingi af eignum sjóðanna.

Ef undan eru skildir síðustu þrír mánuðir var nær stöðugt innflæði hefur í bæði hlutabréfasjóði og blandaða sjóði í að verða um tvö ár og á árinu 2021 liðlega fjórfaldaðist það frá fyrra ári. Samanlagðar fjárfestingar í slíka sjóði voru um 58 milljarðar í fyrra.

Frá því í apríl árið 2020 hafa eignir hlutabréfasjóðanna vaxið um meira en 90 milljarða króna – úr 62 milljörðum í 155 milljarða – sem eykur um leið fjárfestingagetu sjóðanna sem því nemur. Eignir blandaðra sjóða hafa yfir sama tímabil stækkað um liðlega 170 prósent og nema nú tæplega 77 milljörðum.

Mogens Mogensen, forstöðumaður hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum, sagði við Innherja fyrr í þessum mánuði að það væri fátt sem benti til þess að stórir innlendir fjárfestar, eins og lífeyrissjóðir og hlutabréfasjóðir, væru að selja mikið af eignum sínum á hlutabréfamarkaði samtímis þeim verðlækkunum hafa verið. 

Benti hann á að það sé búið að reynast erfitt fyrir fjárfesta að ná sér í jákvæða raunávöxtun í umhverfi hárrar verðbólgu og hækkandi vaxta síðustu mánuði og því útlit fyrir að þeir muni áfram líta til áhættumeiri eigna eins og hlutabréfa.


Tengdar fréttir

Fjárfestar munu enn líta til áhættumeiri eigna eins og hlutabréfa, segir sjóðstjóri

Það er fátt sem bendir til þess að stórir innlendir fjárfestar, eins og lífeyrissjóðir og hlutabréfasjóðir, séu að selja mikið af eignum sínum á hlutabréfamarkaði í þeim verðlækkunum sem hafa orðið að undanförnu. Það hefur reynst fjárfestum erfitt að ná sér í jákvæða raunávöxtun í umhverfi hárrar verðbólgu og hækkandi vaxta síðustu mánuði og því útlit fyrir að þeir muni áfram líta til áhættumeiri eigna eins og hlutabréfa.

Seldu úr sjóðum fyrir um þrjá milljarða samtímis óróa á mörkuðum

Innlausnir fjárfesta í innlendum hlutabréfasjóðum voru um 1.640 milljónum krónum meiri en sem nam fjárfestingum þeirra í slíkum sjóðum í mars en miklar sveiflur voru þá á mörkuðum, bæði hér heima og erlendis, vegna stríðsátakanna í Úkraínu og lækkaði Úrvalsítalan sem dæmi um sjö prósent á fyrstu átta dögum mánaðarins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×