Þrisvar sinnum fleiri látist af Covid-19 en tilkynnt var um Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. maí 2022 12:25 Karlmaður á Indlandi með súrefnisgrímu. Hvergi hafa fleiri látist vegna veirunnar en þar í landi. Getty Tæplega fimmtán milljón manns hafa látið lífið vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Þetta er niðurstaða Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) sem birti skýrslu sína í dag.
Stofnunin telur að fjölmörg lönd hafi vantalið fjölda látinna vegna Covid en tilkynnt andlát undanfarin rúm tvö ár nema aðeins 5,4 milljónum manna. Talið er að 4,7 milljónir hafi látið lífið á Indlandi vegna Covid sem er tíföld opinber dánartala og um leið tæplega þriðjungur allra látinna í heiminum vegna veirunnar. Ríkisstjórn Indlands dregur niðurstöðu WHO í efa og telur aðferðarfræðina sem beitt var orka tvímælis. Aðrar rannsóknir á fjölda látinna á Indlandi hafa þó komist að sambærilegri niðurstöðu. Samkvæmt niðurstöðu WHO voru 57 prósent látinna karlar og 43 prósent konur. Aðferðarfræði WHO byggir á því að skoða hve miklu fleiri létu lífið á sömu slóðum og á árunum fyrir faraldurinn. Þá taka útreikningarnir með í reikninginn óbein andlát af Covid svo sem fólk sem fékk ekki umönnun á sjúkrahúsi vegna álags. Sömuleiðis takmarkaðar skráningar á andlátum í fátækari löndum og takmarkaðar sýnatökur við upphaf faraldurins. WHO segir þó stærstan hluta 9,5 milljóna andlátanna umfram opinberar tölur vera andlát sem rekja megi með beinum hætti til faraldursins. Frétt BBC.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Indland Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Sundrung í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við drápi á ungmenni Fjarlægja mælitæki sem fylgist með AMOC nærri Íslandi Frítt til tannlæknis, skattalækkanir og gamall stórhátíðardagur endurvakinn Nýr El niño gæti orðið sá sterkasti sem sögur fara af Ætla að senda fleiri hælisleitendur á brott Skaðabótasjóður Trumps í hættu Ellefu látnir í umfangsmiklum árásum Rússa Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Áframhaldandi átök í Líbanon þrátt fyrir samkomulag Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Sjá meira