Gert að greiða konu 3,5 milljónir vegna slyss í Sundhöll Reykjavíkur Eiður Þór Árnason skrifar 27. apríl 2022 15:21 Slysið átti sér stað á útisvæði Sundhallar Reykjavíkur. Reykjavíkur Reykjavíkurborg hefur verið dæmd til að greiða konu 3.529.622 krónur í skaðabætur auk vaxta vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir þegar hún féll á sundlaugarbakka í Sundhöll Reykjavíkur.
Konan rann til á mottu sem hafði verið komið fyrir á bakkanum við útilaug Sundhallarinnar þann 6. desember 2018 að kvöldlagi þegar hún var á gangi frá kvennaklefa Sundhallarinnar í átt að heitum potti sem er á útisvæði samsíða útilauginni. Þegar konan gekk eftir blárri mottu sem komið hafði verið fyrir á gönguleið hennar milli vaðlaugar og sundlaugarinnar skrikaði henni fótur og hún féll. Fram kom í skýrslu heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 5. september 2019 að tilkynnt hafi verið um fjórtán hálkuslys á tímabilinu mars 2018 til október 2019 í kjölfar þess að útisundlaug Sundhallarinnar var tekin í notkun. Konan slasaðist á miðju tímabilinu sem slysahrinan stóð yfir. Fram kom í skýrslunni að starfsmenn Sundhallarinnar hefðu greint frá því að þeir hefðu sett bláar plastmottur á gönguleiðir til að sporna við slysum en þess getið að ekki væri hægt að hafa þessar mottur uppi að vetri til þar sem þær yrðu hálar í frosti. Þar sem snjóbræðslukerfi næði ekki að hita upp undir motturnar væri einungis unnt að nota þær á sumrin og sett væri salt á gönguleiðir á veturna. Af hálfu heilbrigðiseftirlitsins voru gerðar kröfur um varanlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir hálku á sundlaugarbökkum og mun það hafa leitt til þess að á yfirborð sundlaugabakkanna var borið efni til að gera þá stamari. Tryggingafélagið vildi ekki una úrskurði nefndarinnar Í nóvember 2020 úrskurðaði úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum að konan ætti rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu Reykjavíkurborgar hjá VÍS. Álit sitt byggði nefndin á því að nægjanlega væri sýnt fram á með gögnum málsins að aðstæður hefðu ekki verið nægjanlega öruggar fyrir gangandi vegfarendur á þeim stað þar sem konan féll. Annars hefði ekki þurft að gera frekari ráðstafanir á árinu eftir slys stefnanda og ekki hefðu þá verið gerðar athugasemdir í skýrslu heilbrigðiseftirlitsins. Í kjölfarið krafði konan VÍS um bætur fyrir hönd Reykjavíkurborgar í nóvember 2020 en VÍS tilkynnti henni að ekki væri unað við niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar. Taldi VÍS að skilyrði skaðabótaskyldu væru ekki uppfyllt þar sem aðstæður á slysstað hefðu uppfyllt öll skilyrði starfsleyfis um hálkuvarnir og öryggismerkingar. Sundhöll Reykjavíkur var tekin í notkun árið 1937. Guðjón Samúelsson arkitekt teiknaði tæplega 2.700 fermetra húsið. Reykjavík Ekki fallist á að að konan hafi átt hlut í því að slysið átti sér stað Þann 20. maí 2021 fékk konan leyfi til gjafsóknar og höfðaði málið gegn Reykjavíkurborg og VÍS 8. júní 2021. Niðurstaða mats lögfræðings og bæklunarlæknis á afleiðingum slyssins var sú að tímabundin óvinnufærni konunnar hefði staðið frá 6. desember 2018 til 21. janúar 2019. Þá ætti konan rétt á þjáningarbótum vegna sama tímabils, varanlegur miski næmi tíu stigum og varanleg örorka væri 5%. Sjálf segir konan að fall hennar megi rekja til þess að hún hafi dottið á hálu yfirborði sundlaugarmottunnar. Þó liggur fyrir að ekki var um hálku vegna ísingar að ræða þar sem hitastig var vel yfir frostmarki á umræddum degi. Starfsmaður borgarinnar sem fyllti út slysaskýrslu Sundhallarinnar notaði einnig orðið hálka til að lýsa aðstæðum á staðnum þar sem slysið átti sér stað. Héraðsdómur féllst ekki á að sú hálka og „sleipa“ sem varð konunni að falli hafi verið eðlileg þannig að fall hennar verði talið hafa átt sér stað vegna óhappatilviljunar. Dómurinn sagði ekkert hafa komið fram í málinu sem skjóti stoðum undir þann málatilbúnað Reykjavíkurborgar að konan hafi á einhvern hátt gengið óvarlega fram eða átt hlut að því á annan hátt að slys hennar átti sér stað. Var því fallist á skaðabótaskyldu Reykjavíkurborgar.
Reykjavík Dómsmál Sundlaugar Slysavarnir Tryggingar Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira