Körfubolti

Joel Embiid spilaði meiddur í nótt og gæti þurft að fara í aðgerð

Atli Arason skrifar
Joel Embiid spilaði með spelku yfir hægri þumalputta í nótt. Hérna sést hann í eitt af mörgum skiptum setja þrýsting á puttan til að mæta sársaukanum.
Joel Embiid spilaði með spelku yfir hægri þumalputta í nótt. Hérna sést hann í eitt af mörgum skiptum setja þrýsting á puttan til að mæta sársaukanum. Getty Images

Fjórir leikir voru spilaðir í 8-liða úrslitum úrslitakeppninar í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Nets á í hættu að vera sópað í sumarfrí á meðan Raptors stöðvaði sópinn. Joel Embiid, leikmaður Sixers, spilaði meiddur í tapi Philadelphia 76ers.

Philadelphia 76ers 102-110 Toronto Raptors

Toronto Raptors náði að forða því að vera sópað út úr úrslitakeppninni er þeir unnu 8 stiga sigur á Philadelphia 76ers, 102-110. Staðan í einvíginu er nú 3-1 fyrir Sixers en liðið sem er fryst til að vinna fjóra leiki vinnur einvígið. Sixers fær því annað tækifæri til að slá Raptors úr leik á heimavelli á mánudaginn.

Joel Embiid, leikmaður Sixers, spilaði þrátt fyrir þumalputta meiðsli og hann byrjaði leikinn illa en tókst samt að gera 21 stig. Meiðsli Embiid verða skoðuð betur á morgun en hann gæti þurft að fara í aðgerð á puttanum en segist þó ætla að fresta því þangað til eftir tímabilið og spila í gegnum sársaukann, sama hver niðurstaða læknanna verður. Pascal Siakam, leikmaður Raptors, skoraði flest stig allra í leiknum en hann gerði 34 stig.

Memphis Grizzlies 118-119 Minnesota Timberwolves

Minnesota Timberwolves vann eins stigs sigur á Memphis Grizzlies, 118-119, í leik þar sem úrslitin réðust á síðustu sekúndum leiksins. Liðin skiptust á að vinna leikhluta en Timberwolves hafði betur í síðustu sóknum leiksins þar sem Karl-Anthony Towns var öruggur á vítalínunni en Towns skoraði alls úr 14 af 17 vítum sínum í leiknum og var stigahæstur hjá Timberwolves með 33 stig. Desmond Bane gerði flest stig í liði Grizzlies, alls 34 punktar.

Með sigrinum jafnaði Timberwolves einvígi liðanna í 8-liða úrslitum vesturdeildar. Staðan er núna 2-2 fyrir næsta leik liðanna sem er í Memphis á þriðjudaginn.

 

Dallas Mavericks 99-100 Utah Jazz

Utah Jazz vann eins stigs sigur á Dallas Mavericks, 99-100, í endurkomuleik Luka Doncic, leikmanns Mavericks. Þrátt fyrir að vera nýkominn til baka úr kálfa meiðslum þá var Doncic samt stigahæsti leikmaður vallarins með 30 stig ásamt því að taka 10 fráköst. Þetta var fyrsti leikur Doncic í úrslitakeppninni í ár en hann hefur misst af síðustu þremur leikjum vegna meiðslanna.

Einvígið er nú allt jafnt í stöðunni 2-2 en liðin mætast í leik fimm í Dallas á mánudaginn.

Boston Celtics 109-103 Brooklyn Nets

Kyrie Irving og Kevin Durant eiga í hættu að vera sópað í sumarfrí þar sem Brooklyn Nets tapaði þriðja leik sínum í röð gegn Boston Celtics, 109-103.

Aftur var það frábær varnarleikur Celtics sem skóp sigurinn en gestirnir frá Boston þvinguðu Nets í 21 tapaðan bolta sem urðu að 37 stigum fyrir Celtics. Irving og Durant skoruðu báðir einungis 16 stig en Jayson Tatum fór á kostum í liði Celtics og var lang stigahæstur með 39 punkta.

Liðinn mætast í fjórða sinn aftur í Brooklyn á mánudaginn þar sem heimamenn í Nets verða með bakið upp við veginn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×