Lífið

Insta-Grammy: Brotin verðlaun, Gucci og BTS

Elísabet Hanna skrifar
Íslendingar áttu góða fulltrúa á Grammy verðlaununum.
Íslendingar áttu góða fulltrúa á Grammy verðlaununum. Skjáskot/Instagram

Um helgina fór Grammy verðlaunahátíðin fram og voru stjörnurnar duglegar að deila myndum frá viðburðinum á sínum persónulegu miðlum. Íslendingar áttu góða fulltrúa á hátíðinni sem voru glæsileg á rauða dreglinum.

Hin íslenska Dísella Lárusdóttir vann Grammy verðlaun og var skiljanlega alsæl með árangurinn.

Dua Lipa var að kynna verðlaun á hátíðinni með Megan Thee Stallion og náði einnig að stilla sér upp með Donatellu Vercase.

Hailey Bieber birti myndir af sér og eiginmanni sínum Justin Bieber sem var með átta tilnefningar en fór tómhentur heim.

Ólafur Arnalds var líka á svæðinu og var tilnefndur til tveggja verðlauna en vann þó ekki.

Tvíeykið Silk Sonic eru þeir Bruno Mars og Anderson.Paak og tóku þeir nokkur verðlaun með sér heim meðal annars fyrir lag ársins, Leave the Door Open.

Carrie Underwood vann verðlaun og var með frábært atriði á hátíðinni.

BTS voru mættir og var Luna dóttir Chrissy Teigen og John Legend ánægð að sjá þá.

Lil Nas deildi mynd með fylgjendum sínum þar sem hann segist ætla að reyna aftur á næsta ári eftir að hafa ekki unnið neitt af þeim fimm verðlaunum sem hann var tilnefndur til.

Doja Cat deildi á miðlum sínum myndum af þeim kjólum sem hún klæddist á sunnudaginn áður en hún vann sjálf Grammy verðlaun.

SZA vann ásamt Doja Cat fyrir sem besta popp tvíeykið fyrir Kiss me more.

Chrissy Teigen deildi nokkrum myndum meðal annars af sér og eiginmanni sínum John Legnd og börnunum þeirra Lunu og Miles.

Jon Batiste vann flest verðlaun kvöldsins meðal annars fyrir plötu ársins og tók hann líka lagið sitt Freedom fyrir salinn.

Oliviu Rodrigo gekk ekki jafn vel og Jon Batiste að halda á verðlaununum sínum og brotnaði óvart einn gripurinn líkt og gerðist hjá Taylor Swift árið 2010 og fengu margir déjà vu.

Olivia skemmti sér þó vel í eftirpartýinu með Paris Hilton þegar búið var að tjasla verðlaununum saman á ný.

Paris Hilton mætti á rauða dregilinn áður en hún stóð vaktina við DJ borðið.

Kravis létu sig ekki vanta á rauða dregilinn en Travis Baker kom fram á hátíðinni en þau giftu sig síðar um kvöldið í Las Vegas þar sem „Elvis Presley“ gaf þau saman.

Kærasti Addison Raee, hann Omer Fedi, var tilnefndur og nutu þau kvöldsins saman.

Trevor Noah var kynnir kvöldsins og var glæsilegur í Gucci.

West side story stjarnan Rachel Zegler skemmti sér einstaklega vel með kærastanum sínum Josh.

Billy Porter skein í bleiku á rauða dreglinum. 

Kántrí söngkonan Kelsea Ballerina deildi því þegar hún var að undirbúa sig fyrir kvöldið.

Lady Gaga fór ekki tómhent heim.


Tengdar fréttir

Sætir og súrir sigrar á Grammy verðlaununum

Grammy verðlaunin fóru fram í gær og ungstirnið Olivia Rodrigo, Jon Batiste og R&B tvíeykið Silk Sonic voru sigursælust í stóru flokkunum. Aðstandendur hátíðarinnar vildu þetta árið að hátíðin myndi frekar líkjast stórtónleikum heldur en verðlaunahátíð. 

Á heimleið eftir súrrealískt gærkvöld

Endalaust þakklæti er eftst í huga sópransöngkonunnar Dísellu Lárusdóttur, sem vann Grammy-verðlaun í gærkvöldi. Hún er fimmti Íslendingurinn til að vinna til verðlaunanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×