Bíó og sjónvarp

Alexandra Sif í tökum með lagahöfundi Beyoncé

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Alexandra Sif starfar hjá streymisveitunni Spotify og var mætt á fjölmiðladag Óskarsins síðastliðinn föstudag.
Alexandra Sif starfar hjá streymisveitunni Spotify og var mætt á fjölmiðladag Óskarsins síðastliðinn föstudag. Aðsend

Alexandra Sif Tryggvadóttir vinnur hjá stórfyrirtækinu Spotify og er búsett í sólríku Los Angeles. Hún er að gera öfluga hluti vestanhafs í ýmsum verkefnum og öðlaðist það eftirsótta tækifæri að fá að sækja sérstakan fjölmiðla dag fyrir Óskarsverðlaunahátíðina. Blaðamaður hafði samband við Alexöndru og tók púlsinn á stemningunni svona rétt fyrir Óskarinn. 

Lífið á Vísi verður með ítarlega Óskars umfjöllun í beinni í kvöld, bæði á rauða dreglinum og á verðlaunahátíðinni sjálfri.

Alexandra segir virkilega skemmtilegt að hafa fengið að taka þátt í þessum mjög svo einstaka fjölmiðla degi. 

„Akademían hafði samband við Spotify og bauð okkur að taka þátt í þessu með þeim. Þetta var í fyrsta skiptið sem að þeir prófuðu að halda svona media day og þar sem við erum Spotify þá vildu þeir að við tækjum viðtal við listamenn tilnefnda fyrir Best original score, eða besta frumsamda lagið. Spotify ákvað að senda þáttastjórnanda hjá okkur til þess að taka viðtölin og mig til þess að sjá um hljóð og framleiðslu.“

„Við tókum viðtal við lagahöfundinn Diane Warren sem fékk þrettándu óskarstilnefninguna sína í ár og hún viðurkenndi það að hún væri mikið að vonast eftir sigri á sunnudaginn. 

Diane Warren vonast eftir sigri í kvöld.Alexandra Sif/Aðsend
Við ræddum einnig við DIXSON sem samdi lagið Be Alive með Beyonce en hann sagði okkur að hann hafði aldrei verið jafn stressaður fyrir neinu og að vinna með Beyonce og það að vera bara tilnefndur væri heiður.“

Hún segir stemninguna góða vestanhafs og að allir séu virkilega spenntir fyrir kvöldinu.

„Það er svolítið síðan að við fengum „venjulega“ óskarsverðlaunahátíð og það verður gaman að sjá hátíðina aftur í Dolby Theater. Það er líka svo gaman að sjá hvað það er mikið af viðburðum um alla borg. Maður finnur bara að hlutir eru að lifna við hérna aftur eftir tveggja ára pásu.“

Alexandra Sif hefur lengi vel verið mikill aðdáandi Óskarsins og fylgist grant með tilnefningunum hverju sinni. Í ár segist hún sérstaklega hafa verið glöð að sjá að Kristen Stewart hafi fengið tilnefningu fyrir kvikmyndina Spencer, sem fjallar um líf Díönu prinsessu.

„Ég er 100% með kenningar um tilnefningarnar en ég er auðvitað ekki viss hvað vinnur. Ég er mjög spennt að sjá hver vinnur bestu bíómyndina, segir Alexandra og bætir við að hún skjóti á að kvikmyndin CODA hreppi Óskarinn í ár.“

Aðspurð um hvernig hún ætli að eyða óskars kvöldinu segir hún ekki enn vera í planinu að skella sér í Óskars partý.

„Ætli ég horfi ekki bara heima með fjöllunni og góðum mat. En ef einhver býður mér last minute í óskarspartý þá er ég mjög til!“

Að lokum fannst blaðamanni við hæfi að spyrja um uppáhalds rauða dregils klæðnaðinn hingað til og þurfti Alexandra ekki að hugsa sig tvisvar um. 

„Ég held að ég verði að segja Björk í svanakjólnum. ICONIC.“


Tengdar fréttir

Hita upp fyrir Óskarinn

Dóra Júlía og Elísabet Hanna ætla að fylgja þér í gegnum Óskarinn á sunnudaginn og tóku þær forskot á sæluna með sérstökum upphitunarþætti. Þær ætla að vera með ykkur á vaktinni á Vísi frá því að fyrsta stjarnan mætir og þangað til að sú síðasta fer heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×