Heimsmarkmiðin

Ísland veitir neyðaraðstoð til Malaví í kjölfar hitabeltisstorms ​

Heimsljós
UTN

Ísland hefur svarað samræmdu neyðarkalli Sameinuðu þjóðanna um stuðning við Malaví í kjölfar hitabeltisstormsins Ana sem reið yfir suðurhluta landsins í lok janúar og hafði í för með sér mikla eyðileggingu. Neyðarástand ríkir í þessum hluta Malaví og Ísland hefur ákveðið að veita 40 milljónum króna til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) til að tryggja fæðuöryggi í þremur héruðum sem urðu verst úti.

„Eftir greiningu á skammtíma og langtíma þörfum sem hafa skapast vegna náttúruhamfaranna teljum við brýnast að tryggja fæðuöryggi, en 445 þúsund manns eru í þörf fyrir mataraðstoð eins og stendur,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongwe. Með framlagi Íslands fá 45 þúsund einstaklingar fjárstyrk til eins mánaðar til að sjá sér og fjölskyldum sínum fyrir lífsnauðsynjum.

Mikil flóð, úrhelli og ofsavindar skullu á átján sveitarfélögum í sunnanverðu Malaví. Um 190 þúsund manns misstu heimili sín og enn fleiri töpuðu matarbirgðum, búpeningi og horfa fram á eyðilögð ræktarsvæði. Mikill meirihluti landsmanna í Malaví lifir á sjálfsþurftarbúskap og því misstu margir aleiguna. Afleiðingar stormsins sjást meðal annars á því að tæplega ein milljón einstaklinga er talin þurfa á brýnni mannúðaraðstoð að halda. Margir hafast við í tímabundnum búðum sem hafa verið settar upp í skólum en að auki eru margt flóttamanna í þessum búðum frá Mósambík sem einnig varð illa úti í storminum.

Alls eru 46 dauðsföll staðfest í Malaví, átján er enn leitað og meira en 200 særðust, samkvæmt tölum frá malavískum stjórnvöldum. Sameiginlega ákallið miðar að því að virkja aðgerðir til stuðnings viðbrögðum stjórnvalda til að bregðast við ástandinu og aðstoða þá íbúa í sex héruðum í sunnanverðu landinu sem líða mestan skort.


Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×