Innlent

Runólfur tekinn til starfa sem forstjóri Landspítala

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Runólfur Pálsson hóf störf í dag sem forstjóri Landspítala. 
Runólfur Pálsson hóf störf í dag sem forstjóri Landspítala.  Vísir/Vilhelm

Runólfur Pálsson hefur hafið störf sem forstjóri Landspítala. Í ávarpi sínu á vef Landspítala segist Runólfur taka við starfinu af stolti og auðmýkt. Hann segir árangur spítalans á ýmsum sviðum hafa vakið eftirtekt og að sá árangur sé starfsfólki spítalans að þakka en lýsir þó yfir áhyggjum eftir kórónuveirufaraldurinn.

Þrátt fyrir að farsóttin verði vonandi fljótlega að baki eru áskoranir fram undan. Ég hef sérstakar áhyggjur af viðvarandi skorti á starfsfólki og legurýmum. Þessi skortur skapar óviðunandi vinnuumhverfi og óhóflegt álag á starfsfólk. Þennan vítahring verðum við að rjúfa,“ segir Runólfur.

Landspítali var færður yfir á neyðarstig síðastliðinn föstudag eftir að öllum Covid takmörkunum var aflétt en forsvarsmenn Landspítala hafa ítrekað lýst yfir áhyggjum yfir stöðunni á spítalanum.

Að sögn Runólfs munu megináherslurnar næstu mánuðina snúa að því að styrkja mönnun og vinna að verkefni spítalans séu við hæfi. Horfa þurfi sérstaklega til sérhæfðrar þjónustu spítalans auk þess sem nauðsynlegt er að skilgreina hvaða verkefni eiga heima hvar.

„Í þeirri vinnu sem fram undan er tel ég mikilvægt að við byggjum á styrkleikum okkar þótt samtímis þurfi að berja í helstu bresti. Þetta verður yfirgripsmikið og krefjandi verkefni sem við þurfum öll að vinna saman. Raddir ykkar, starfsfólksins, eru sem aldrei fyrr mikilvægar í þessari vegferð og ég mun sérstaklega leggja mig fram um að hlusta eftir þeim,“ segir Runólfur.

Læknir að mennt og prófessor

Runólfur var skipaður í embættið til fimm ára af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra þann 1. febrúar síðastliðinn en hann var metinn hæfastur í starfið að mati lögskipaðrar hæfnisnefndar. 

Hann tekur við starfinu af Páli Matthíassyni sem lét af störfum í október en Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir hefur verið settur forstjóri spítalans frá þeim tíma.

Runólfur er læknir að mennt með sérfræðiréttindi í lyflækningum og nýrnalækningum. Þá er hann prófessor við Háskóla Íslands og varaforseti læknadeildar þar.

Hann var á tíma kennslustjóri lyflækningasviðs og staðgengill framhaldsmenntunarstjóra lyflækningasviðs Landspítala auk þess sem hann var einn af yfirlæknum Covid-göngudeildarinnar. Þá hefur hann komið að fjölda nefnda og annarra stefnumótandi starfa í tengslum við kennslu- og þjálfunarhlutverk spítalans.


Tengdar fréttir

Engar takmarkanir lengur í gildi vegna Covid

Öllum samkomutakmörkunum vegna Covid-faraldursins hefur nú verið aflétt, bæði innanlands og á landamærunum. Þá hefur krafa um einangrun þeirra sem greinast smitaðir verið felld niður. Þetta er í annað sinn sem samkomutakmörkunum innanlands hefur verið aflétt en nú hefur skrefið verið tekið að fullu, og vonandi í síðasta sinn.

Landspítali færður á neyðarstig

Landspítali hefur verið færður á neyðarstig. Farsóttarnefnd tók þessa ákvörðun og tók nýtt ástand gildi klukkan 14 í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×