Tónlist

„Ástríðan fyrir tónlistinni einhvern veginn alltaf fylgt mér“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Söngkonan Rakel er tilnefnd sem Nýliði Ársins á Hlustendaverðlaununum 2022. 
Söngkonan Rakel er tilnefnd sem Nýliði Ársins á Hlustendaverðlaununum 2022.  Kaja Sigvalda/Aðsend

Söngkonan Rakel Sigurðardóttir er tilnefnd sem Nýliði Ársins á Hlustendaverðlaununum í ár. Hún er nýbyrjuð að gefa út eigið efni en hefur í gegnum tíðina komið fram með fjölda tónlistarfólks og er meðal annars á laginu Ég var að spá sem er tilnefnt sem Lag Ársins á hátíðinni.

Nú styttist óðum í Hlustendaverðlaunin 2022 sem fara fram 19. mars næstkomandi. Nýliði ársins er meðal verðlaunaflokka og eru átta hljómsveitir og tónlistarmenn sem keppast um titilinn. Lífið á Vísi ræddi við allt listafólkið sem var tilnefnt í þessum flokki og fékk smá innsýn inn í sköpunargleði þeirra og tónlist.

Hver ert þú í þínum eigin orðum?

„Ég heiti Rakel Sigurðardóttir og er tónlistarkona frá Akureyri en búsett í Reykjavík. Ég hef verið að vasast í tónlist alveg frá því ég var barn, byrjaði að læra á fiðlu 6 ára gömul og hóf síðan jazz söngnám 14 ára. Ég hef komið fram með fjölda tónlistarfólks í gegnum árin en er bara núna að stíga mín fyrstu skref í því að gefa út mína eigin tónlist og í maí gaf ég út stuttskífuna Nothing Ever Changes.“

Hvenær kviknaði ástríðan fyrir tónlist?

„Ég man eiginlega ekki eftir mér með slökkt á henni, hún hefur bara alltaf einhvern veginn fylgt mér.“

Hvað er það skemmtilegasta við að vinna í tónlist?

„Mér finnst mjög skemmtilegt að vinna með öðru fólki og tengja við það í gegnum tónlist. 25. febrúar síðastliðinn var ég einmitt að gefa út svokallaða splitt-skífu með vinkonum mínum og tónlistar konunum Salóme Katrínu og ZAAR. Við ætlum svo núna að fylgja útgáfunni eftir með lítilli tónleikaferð þar sem við munum heimsækja heimabæina okkar, Akureyri og Ísafjörð og svo endum við ferðalagið í Fríkirkjunni í Reykjavík.

Þetta er búið að vera alveg magnað ferli og mér finnst ég svo heppin að fá að vinna í tónlist með vinkonum mínum.“

Hvernig hefur þú sem tónlistarmaður þróast frá því þú komst fyrst fram?

„Það er smá skrítið að spá í því, en ég byrjaði að gefa út tónlistina mína í miðjum faraldrinum, þannig að ég hef eiginlega ekkert fengið að spila fyrir fólk.

Núna virðist samt sem það sé að fara að vera möguleiki en það er slatti af tónleikum á planinu og ég er mjög spennt.“

Hvernig var tilfinningin að fá tilnefningu sem nýliði ársins?

„Ég var bara mjög hissa, það er svo ótrúlega mikið af góðri tónlist að koma út á Íslandi núna þannig að ég bara bjóst alls ekki neitt við þessu. En ég er voðalega þakklát.“


Tengdar fréttir

„Erum fyrst og fremst bestu vinir í heiminum“

Hljómsveitin Hylur er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum 2022. Meðlimir sveitarinnar hafa í gegnum tíðina komið fram undir öðrum hljómsveitar nöfnum en alltaf haldið hópinn, enda bestu vinir í heiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×