Innlent

Strætó út af á Kjalarnesi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hér má sjá bílinn sem lokaði fyrir aðra akrein vegarins þar sem hann sat fastur.
Hér má sjá bílinn sem lokaði fyrir aðra akrein vegarins þar sem hann sat fastur. Aðsend

Bíll á vegum Strætó hafnaði utan vegar á Kjalarnesi í kvöld.

Fréttastofu hefur borist myndband af bílnum þar sem hann var utan vegar, en veðurskilyrði á svæðinu eru ekki með besta móti, ekki frekar en víða annars staðar á suðvesturhorninu.

Samkvæmt vegfarandanum sem tók myndbandið var bíllinn um það bil mitt á milli Mógilsár og Grundarhverfis.

Fréttastofa hafði samband við slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sem sagði að ekki hefði verið óskað eftir aðstoð þess vegna málsins, og því ljóst að engin slys hefðu orðið á fólki.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×