Heimsmarkmiðin

Neyðarsöfnun vegna vopnaðra átaka í Úkraínu

Heimsljós
Rauði krossinn

Rauði krossinn hefur hafið neyðarsöfnun vegna vopnaðra átaka í Úkraínu sem hófust í morgun. Alþjóða Rauði krossinn er þegar með umfangsmikla mannúðaraðstoð í landinu vegna ástandsins sem hefur varað í austur Úkraínu undanfarin átta ár og vinnur hönd í hönd með Rauða krossinum í Úkraínu við að mæta þörfum almennra borgara og lina þjáningar vegna vopnaðra átaka.

Rauði krossinn á Íslandi segir í frétt að fyrirséð sé að neyð almennra borgara aukist aukist dag frá degi haldi átökin áfram og óttast sé að bæði skortur á vatni og matvælum aukist. „Mannúðaraðstoð Rauða krossins leitast fyrst og fremst við að vernda óbreytta borgara, minna deiluaðila á skyldur sínar í samræmi við alþjóðleg mannúðarlög stuðla að því að nauðsynlegir innviðir á borð við vatns- og rafmagnsveitur verði ekki gerðir að skotmörkum,“ segir í fréttinni.

„Við hvetjum alla stríðandi aðila til að virða alþjóðleg mannúðarlög í hvívetna,“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir framkvæmdastjóri Rauða krossins sem minnir á að samkvæmt þeim njóti almennir borgarar griða og einnig borgaralegir innviðir á borð við vatns- og rafmagnsveitur sem ekki tengjast hernaði á nokkurn hátt. Stríðandi fylkingum sé skylt að gæta meðalhófs í hernaðaraðgerðum sínum.

„Við vitum ekki hvort eða hvernig átökin munu vinda upp á sig,“ segir Kristín en bendir á að ljóst sé að mannúðarvandi almennra borgara í Úkraínu muni aukast og hún kveðst einnig óttast að talsverður fjöldi neyðist til að flýja land vegna átakanna. „Flestir munu líklega leita til nágrannaríkja þar sem Rauði krossinn hefur þegar hafið undirbúning á móttöku fólks en það er einnig viðbúið að hingað muni einhverjir leita skjóls,“ segir hún.

Allt fjármagn sem safnast í neyðarsöfnun Rauða krossins verður nýtt til að mæta þörfum íbúa Úkraínu og veita neyðarþjónustu eins og tryggja aðgengi að mat, vatni, heilbrigðisþjónustu, húsaskjóli og veita sálrænan stuðning.

Hægt er að veita nauðsynlega mannúðaraðstoð til íbúa í Úkraínu með eftirtöldum leiðum:

SMS: Senda HJALP í símanúmerið 1900 (2.900 kr.)

Aur: @raudikrossinn eða 1235704000

Kass: raudikrossinn eða 7783609

Söfnunarreikningur Rauða krossins: 0342-26-12, kt. 530269-2649


Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×