Tónlist

Grunaði að smá gleði og jákvæðni myndi falla vel í kramið

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tónlistarfólkið RAKEL, JóiPé og CeaseTone eru tilnefnd til Hlustendaverðlauna fyrir lagið Ég var að spá. 
Tónlistarfólkið RAKEL, JóiPé og CeaseTone eru tilnefnd til Hlustendaverðlauna fyrir lagið Ég var að spá.  Aðsend

Hlustendaverðlaunin 2022 fara fram laugardaginn 19. mars næstkomandi og eru það útvarpsstöðvarnar FM957, Bylgjan og X 977 sem standa saman að þessari verðlaunahátíð.

Í flokknum Lag Ársins keppast sjö íslensk lög um vinninginn en lögin eru öll ólík og tilheyra fjölbreyttum tónlistarstefnum. Lífið á Vísi heyrði í því tónlistarfólki sem flytur lögin sem fengu tilnefningu og fékk að heyra söguna á bak við hvert einasta lag. Á næstu viku munum við birta viðtölin og veita lesendum frekari innsýn í ferlið á bak við sín uppáhalds lög. 

Fyrsta lag sem við kynnum til leiks er lagið Ég var að spá með tónlistarfólkinu RAKEL, JóaPé og CeaseTone en blaðamaður fékk þau til að svara nokkrum spurningum.

Hvernig kviknaði hugmyndin að laginu og hvaðan kom innblásturinn?

Lagið varð til um hávetur og við vorum að reyna að gera eitthvað dramatískt tilfinningapopp. Við vorum síðan ekki alveg að nenna því og ákváðum að gera eitthvað flipp og stuð í staðinn sem frelsaði hugann aðeins og leiddi okkur út í þetta lag.

Hvernig gekk ferlið og hvernig varð lagið að veruleika?

Rakel og Haffi (CeaseTone) höfðu aldrei samið texta á íslensku áður og voru smá smeik við það en það kom svo á óvart hversu auðveldlega það flæddi. Það hjálpaði til að Jói setti svolítið tóninn með sínu fyrsta versi. Haffi eyddi svo allt of miklum tíma bara í bassalínuna sjálfa sem endaði með að hún stýrir laginu ansi mikið. Við komum öll frá þokkalega mismunandi músikölskum bakgrunni og því var gaman að sjá hvernig okkar eiginleikar enduðu með að smella svona vel saman, indie pop rokk og hip hop virðast eiga ágætis samleið undir réttum kringumstæðum.

Á endanum var þetta lag góð áminning fyrir okkur hversu góðir hlutir geta komið út úr því að sleppa bara svolítið takinu og gleyma sér í því að gera eitthvað sem er algjörlega til gamans.

Áttuð þið von á því að lagið myndi ná svona vel til hlustenda?

Við vorum öll mjög sátt með lagið og höfðum góða tilfinningu fyrir því. Okkur grunaði að smá gleði og jákvæðni myndi falla vel í kramið með slakandi takmörkunum og rísandi sól, en maður passar alltaf að halda væntingum í skefjum þegar maður gefur út nýja tónlist. Það kom okkur samt svo sannarlega skemmtilega á óvart hversu vel fólk tók við þessu lagi. Núna krossum við fingur og bíðum eftir því að fá að flytja lagið fyrir framan fólk.

Kosning fyrir Hlustendaverðlaunin er nú í fullum gangi og geta hlustendur kosið það sem þeim þótti standa upp úr hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×