Tíska og hönnun

Gummi kíró boðar komu Covid tískunnar

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
Gummi kíró fer yfir tískustraumana fyrir 2022.
Gummi kíró fer yfir tískustraumana fyrir 2022. Instagram

Tískuspekúlantinn og kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason eða Gummi kíró eins og hann er kallaður tók á dögunum saman lista með tískuráðum fyrir árið fram undan.

Covid virðist hafa verið innblástur fyrir tískustraumana sem eru í gangi en svokölluð afslöppuð tíska er að koma sterk inn. Það þarf því ekki að fara úr kósígallanum sem margir hafa verið í síðustu mánuði.

,,Tískumerki eins Louis Vuitton og Gucci og Fear Of God, kannist þið við það? Kannist þið við Fear Of God? – það er kannski þessi merki sem hafa verið að tröllríða þessu trendi núna“ 

sagði hann þegar hann lagði Þorgeiri og Völu línurnar í Reyjavík Síðdegis í gær.

Það eru líka þessi mjúku efni, þessi hlýju mjúku efni sem er kannski sterkasta stefnan. Gummi bendir á að þessir tískustraumar eru líka í Zöru og H&M svo það er viðráðanlegt fyrir flesta að fylgja þessum straumum. Þú getur verið í jogging galla frá Zöru, HM eða í jogging galla frá Louis Vuitton, allt snýst þetta um að hafa fallega aukahluti með.

Gummi segir yngri kynslóðin vera meira með puttann á púlsinum þegar kemur að tískunni og augljóst að hann hefur mikla ástríðu fyrir tísku.

Viðtalið má heyra í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

„Fékk skilaboð frá honum um að hann gæti ekki hætt að hugsa um mig“

„Ég og Gummi vorum áður miklir og góðir vinir en hann var einnig búinn að vera kírópraktorinn minn í einhvern tíma. Síðan fékk ég skilaboð frá honum að hann gæti ekki hætt að hugsa um mig og vildi endilega fá að bjóða mér á deit. Ég tók því bara fagnandi því nokkrum vikum áður var ég sjálf byrjuð að hugsa mikið til hans og við vorum greinilega bæði farin að laðast að hvoru öðru,“ segir Lína Birgitta í viðtali við Makamál. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×