Sport

Snakebite í undanúrslit í Ally Pally

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Peter Wright er kominn í undanúrslit
Peter Wright er kominn í undanúrslit EPA-EFE/SEAN DEMPSEY

Peter „Snakebite“ Wright kom sér áfram í undanúrslit á Heimsmeistarmótinu í pílukasti eftir frábæran leik við ungstirnið Callan Rydz í Ally Pally í kvöld.

Englendingurinn Rydz, vel studdur af áhorfendum í salnum, byrjaði leikinn betur og vann fyrstu tvö settin nokkuð örugglega áður en Wright, sem varð heimsmeistari árið 2020, tókst með herkjum að vinna þriðja settið og koma sér í stöðuna 1-2.

Rydz komst svo í 3-1 og 4-3 áður en reynsluboltinn Wright jafnaði og því ljóst að um oddasett yrði að ræða. Staðan varð svo 2-2 í oddasettinu áður en Wright sigraði síðustu tvo leggina og komst í undanúrslit þar sem hann mun mæta Gary Anderson.

Einn leikur er eftir í 8 manna úrslitum sem fer fram núna í kvöld. Gerwin Price mætir Michael Smith.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×