Körfubolti

Um endur­komu Kyri­e: „Gerir þá lík­legri til að verða meistarar“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kyrie Irving hefur ekki enn spilað fyrir Brooklyn Nets á tímabilinu.
Kyrie Irving hefur ekki enn spilað fyrir Brooklyn Nets á tímabilinu. Kevork Djansezian/Getty Images

Svo virðist sem Kyrie Irving muni loksins spila með Brooklyn Nets í NBA-deildinni þrátt fyrir að vera óbólusettur. Hann mun þó aðeins spila í þeim borgum þar sem leikmenn mega spila þrátt fyrir að vera óbólusettir.

Nets hefur farið frábærlega af stað á leiktíðinni og er sem stendur á toppi Austurdeildarinnar með 21 (22?) sigur og 9 (10?) töp eftir að hafa spilað 31 leik. 

Kevin Durant hefur verið hreint út sagt frábær það sem af er vetri, James Harden er að njóta sín, endurkoma LeMarcus Aldridge hefur gengið mun betur en búist var við og þá hefur Blake Griffin gengið í gegnum endurnýjun lífdaga.

Það er ekki að sjá á Nets að liðið sakni Kyrie Irving sem neitaði að láta bólusetja sig líkt og nær allir aðrir leikmenn deildarinnar. Sökum þess hefur hann ekki enn spilað leik á leiktíðinni og það sem meira er, hann hefur ekki fengið að æfa með liðinu.

Nú virðist sem Kyrie sé loksins við það að snúa aftur á völlinn en hann hefur þó ekki skipt um skoðun hvað varðar bólusetningar. Hann er einn af 10-15 óbólusettum leikmönnum NBA-deildarinnar og mun aðeins fá að spila útileiki fyrst um sinn þar sem leikmenn þurfa að vera bólusettir til að mega spila í New York-borg.

Þrátt fyrir það telja Kjartan Atli Kjartansson og Sigurður Orri Kristjánsson, NBA-ofvitar Stöðvar 2 Sport og Vísis, báðir að endurkoma Kyrie geri Brooklyn Nets enn líklegra til afreka í úrslitakeppni NBA-deildarinnar næsta vor. 

„Nets er ekki betra lið án Kyrie Irving. Hann er frábær leikmaður sem mun hjálpa liðinu ef hann kemst í gott stand og nær sér á strik,“ sagði Kjartan Atli aðspurður hvort Brooklyn Nets væru betra lið án Kyrie. Sigurður Orri tók undir.

„Nei, Nets eru ekki betri án Kyrie. Það munar rosalega miklu um hvort Nets sé að spila Kyrie eða þá að sækja mínútur til minni spámanna. Svo ná hann og Kevin Durant einkar vel saman sem þýðir að þeir spila mjög vel saman.“

Kevin Durant er að spila eins og sá sem valdið hefur. Hann hefur skorað 29,7 stig að meðaltali í leik til þessa á leiktíðinni ásamt því að gefa 5,9 stoðsendingar og taka 7,9 fráköst.AP/Mary Altaffer

„Það verður ef til vill smá hikst hjá þeim í byrjun en við sáum í fyrra að þetta virkar,“ sagði Sigurður Orri varðandi hvaða áhrif innkoma Kyrie myndi hafa þar sem Nets eru í fínum ryðma sem stendur.

„Liðið er í góðum ryðma núna en í NBA snýst þetta bara um að toppa á réttum tíma, toppa í úrslitakeppninni. Ég er alveg viss um að allir hjá Nets eru tilbúnir að fórna smá ryðma nú í deildarkeppninni fyrir hærra þak í úrslitakeppninni. Heill Kyrie gefur þeim svo sannarlega hærra þak, gerir þá líklegri til að verða meistarar,“ sagði Kjartan Atli varðandi möguleika Nets með Kyrie innanborðs.

„Þetta snýst líka um að varðveita Kevin Durant sem er búinn að vera spila of mikið af mínútum, fá inn leikmann sem getur borið uppi sóknarleikinn þegar Durant og mögulega Harden eru utan vallar. Það er það sem Kyrie gefur þeim,“ bætti Kjartan Atli við.

„Klárlega. Það sem skiptir samt mestu máli í þessu er samt að Kevin Durant er að spila eins og besti leikmaður heims um þessar mundir,“ sagði Sigurður Orri varðandi það hvort Nets væri líklegra til afreka með Kyrie á vellinum.

Brooklyn-þríeykið ógurlega.Jim Davis/Getty Images

„Á pappír myndi maður halda að Durant, Harden og Kyrie væru allir að vinna á sama svæðinu þegar kemur að leiknum en þeir passa samt mjög vel saman. Ég held að aðlögunarhæfni Durant spili þar stórt hlutverk. Ef Kyrie hefði verið með Nets í undanúrslitunum í fyrra þá held ég að það sé nokkuð ljóst að Nets hefði unnið, það er bara þannig,“ sagði Kjartan Atli að endingu.


NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.


Tengdar fréttir

Sérfræðingarnir svara stóru NBA-spurningunum

Sjötugasta og sjötta tímabil NBA-deildarinnar er farið af stað. Af því tilefni fengum við tvo helstu NBA-sérfræðinga landsins til að svara stóru spurningunum um tímabilið.

Brooklyn sóttu James Harden sem tryggingu fyrir Kyrie Irving

Forráðamenn Brooklyn Nets í NBA deildinni lögðu hart að sér að sækja James Harden til liðsins. Ástæðan er sú að þeir treystu því ekki að Kyrie Irving myndi spila. Þetta segir körfuboltaskríbentinn Adrien Wojnarowski í hlaðvarpinu sínu, sem kom út um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×