Sport

Van Gerwen örugglega áfram

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Mættur!
Mættur! vísir/Getty

Fjórða keppnisdegi á heimsmeistaramótinu í pílukasti lauk með viðureign Micheal van Gerwen og Chas Barstow.

Van Gerwen þrefaldur heimsmeistari og einn allra vinsælasti kastarinn í bransanum enda var honum vel fagnað í Alexandra Palace í kvöld.

Hinn breski Chas Barstow stal reyndar senunni með því að vinna fyrsta settið, öllum að óvörum. Van Gerwen svaraði vel fyrir sig og vann öruggan 3-1 sigur.

Í hinum þremur leikjunum í kvöld var mikið um dýrðir. Rowby-John Rodriguez vann svakalega sannfærandi sigur á Nick Kenny, 3-0. 

Jim Williams gerði sér lítið fyrir og skellti ungstirninu Ted Evetts, 3-1, og Adam Hunt vann afar öruggan sigur á Boris Krcmar, 3-0.

Á morgun heldur veislan áfram í Alexandra Palace og verður sem fyrr í þráðbeinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×