Fótbolti

Juventus aftur á beinu brautina

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Morata skoraði og lagði upp í kvöld.
Morata skoraði og lagði upp í kvöld. vísir/getty

Juventus vann góðan útisigur á Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Juventus stórveldið verið í miklum vandræðum í upphafi móts en þeir byrjuðu leikinn vel í kvöld því Alvaro Morata kom Juventus í forystu strax á sjöttu mínútu.

Ekkert meira var skorað í fyrri hálfleik.

Juan Cuadrado tvöfaldaði forystu Juventus á 69.mínútu eftir stoðsendingu Morata og gulltryggði þar með sigur gestanna.

Juventus lyfti sér með sigrinum upp í sjötta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×