Fótbolti

Mikael Egill byrjaði í stórtapi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Mikael Egill á æfingu með íslenska A-landsliðinu ásamt Alberti Guðmundssyni.
Mikael Egill á æfingu með íslenska A-landsliðinu ásamt Alberti Guðmundssyni. Vísir/Vilhelm

Mikael Egill Ellertsson og félagar í SPAL áttu ekki góðan dag í ítalska boltanum í dag.

Mikael Egill hóf leik hjá SPAL þegar liðið heimsótti Frosinone í ítölsku B-deildinni í fótbolta.

Leikurinn var markalaus fyrsta hálftímann en á síðasta stundarfjórðungi fyrri hálfleiks skoruðu heimamenn þrjú mörk og lögðu grunninn að sigri.

Mikael var skipt af velli í leikhléi.

Frosinone skoraði eitt mark í síðari hálfleik og vann því öruggan 4-0 sigur.

SPAL í fimmtánda sæti deildarinnar með 20 stig eftir átján leiki og aðeins þremur stigum frá fallsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×