Sport

Sjáðu fyrsta níu pílna leik HM í pílukasti í lýsingu Páls Sævars

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
William Borland náði níu pílna leik í úrslitalegg viðureignarinnar í kvöld.
William Borland náði níu pílna leik í úrslitalegg viðureignarinnar í kvöld. Vísir

William Borland er ekki þekktasta nafnið í pílukastheiminum, en þessi 25 ára Skoti skráði nafn sitt í sögubækurnar þegar hann kláraði viðureign sína gegn Bradley Brooks með níu pílna leik í kvöld. 

Viðureign Borland og Brooks var í alla staði stókostleg skemmtun þar sem keppendurnir skiptust á að taka út hverja risatöluna á fætur annarri.

Brooks vann fyrsta settið 3-0, Borland annað settið 3-1 og svo unnu þeir sitt hvort settið með minnsta mun, 3-2. Báðir höfðu þeir unnið tvo leggi í lokasettinu þegar William Borland gerði það sem alla pílukastara dreymir um.

Borland kláraði legginn, og tryggði sér þar með sigur í viðureigninni, með eins fáum pílum og mögulegt er. Eins og gefur að skilja varð allt viltaust í Alexandra Palace, og Páll Sævar Guðjónsson sem lýsti viðureigninni trúði varla sínum eigin augum.

Sjón er sögu ríkari en myndband af níu pílna leik William Borland gegn Bradley Brooks í lýsingu Páls Sævars má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Níu pílna leikur Borland



Fleiri fréttir

Sjá meira


×