Elmas skaut Napoli upp fyrir AC Milan

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. vísir/Getty

AC Milan fékk Napoli í heimsókn í toppbaráttuslag í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Bæði lið að eltast við topplið Inter Milan en Napoli var án sigurs í þremur leikjum í röð þegar kom að leik kvöldsins.

Albaninn Eljif Elmas kom Napoli yfir strax á fimmtu mínútu leiksins og það átti eftir að reynast sigurmark leiksins.

Heimamenn héldu sig vera að jafna metin á 90.mínútu þegar Franck Kessie skoraði en eftir að markið var skoðað í VAR, var það dæmt af.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira