Innlent

Mega skoða síma vegna rannsóknar á andláti

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögreglan rannsakar andlát manns og fær nú aðgang að síma félaga mannsins.
Lögreglan rannsakar andlát manns og fær nú aðgang að síma félaga mannsins. Vísir/Vilhelm

Landsréttur hefur heimilað lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að rannsaka síma og innihald hans í tengslum við rannsókn á andláti.

Þann 3. nóvember síðastliðinn fékk lögreglan tilkynningu um meðvitundarlausan einstakling. Endurlífgunartilraunur báru ekki árangur.

Í úrskurði Landsréttar kemur fram að strax á vettvangi hafi vaknað grunur um að maðurinn hafi látist af völdum ofneyslu fíkniefna.

Fjórir voru handteknir á vettvangi vegna rannsóknar málsins, þar á meðal eigandi umrædds síma sem lögregla lagði hald á.

Segist hafa sprautað hinn látna með amfetamíni til að hressa hann við

Rannsókn lögreglu hefur beinst að því að reyna að upplýsa hvað hafi átt sér stað í aðdraganda andlátsins.

Telur lögregla ljóst að sá sem lést hafi komið, ásamt eiganda símans, á staðinn þar sem hann lést kvöldið áður. Hann hafi þá þegar verið í slæmu ásigkomulagi.

Illa hefur gengið hjá lögreglu að fá greinargóðar lýsingar á því hvað hafi átt sér stað umrætt kvöld frá þeim sem handteknir voru á staðnum.

Eigandi símans hefur ekki viljað upplýsa um hvaðan hann og hinn látni komu, hvað þeir hafi gert áður umrætt kvöld eða hver hafi komið með þeim.

Þó hefur eigandi símans upplýst lögreglu um að hann hafi haft áhyggjur af ástandi hins látna og því gripið til þess ráðs að sprauta hinn látna með amfetamíni í því skyni að reyna að hressa hann við.

Lögregla telur mikilvægt að rannsaka efni símans, þar á meðal myndskeið eða hljóðupptökur, í því skyni að varpa ljósi á hvað átti sér stað umrætt kvöld. Einnig til að skoða hvort að eigandi símans eða sá sem lést hafi verið í sambandi við einhverja aðra um kvöldið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×