Innlent

Jólapóstkassar og alvöru jólasleðar á Vestfjörðum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Jólapóstkassarnir 12 á Vestfjörðum. Jólalest Vestfjarða er í samstarfi við Vestfjarðastofu og miðar að því að sýna í verki, mikilvægi nýsköpunar á Vestfjörðum, upphefja list og verkgreinar og auka sýnileika Vestfjarða.
Jólapóstkassarnir 12 á Vestfjörðum. Jólalest Vestfjarða er í samstarfi við Vestfjarðastofu og miðar að því að sýna í verki, mikilvægi nýsköpunar á Vestfjörðum, upphefja list og verkgreinar og auka sýnileika Vestfjarða. Aðsend

Vestfirðingar ætla sér að taka jólin alla leið þetta árið því búið er að setja á laggirnar jólaverkefni, sem kallast „Jólalestin“ en það er frumkvöðlaverkefni. Smíðaðir verða 12 jólasleðar og 12 jólapóstkassar, eitt sett fyrir hvert bæjarfélag á Vestfjörðum. Þá geta börnin skrifað jólasveininum bréf og fengið svar til baka.

Þetta spennandi jólaverkefni á Vestfjörðum er unnið í samstarfi við Fab Lab nýsköpunarsmiðju á Ísafirði og stutt af fjölmörgum fyrirtækjum á Vestfjörðum. Vestfjarðastofa kemur einnig að verkefninu en tilgangur þess er meðal annars að auka sýnileik Vestfjarða, ekki síst í jólamánuðinum desember.

Einar Mikael Sverrisson fer fyrir verkefninu.

„Þetta snýst um að gefa af sér í desember. Við erum búin að smíða 12 póstkassa, sem krakkarnir í bæjarfélögum Vestfjarða fá. Þau geta síðan skrifað jólasveininum bréf og svo mun hann svara til baka og þau fá óvæntan glaðning líka. Rétt fyrir jólin ætlum við svo að frumsýna jólasleðana, sem við erum að smíða en við ætlum að smíða 12 jólasleða í fullri stærð,“ segir Einar.

Börnin munu svo fá svar frá jólasveininum og óvæntan glaðning með þegar hann hefur mótttekið bréfið frá börnunum.Aðsend

Einar segir hópinn, sem kemur að verkefninu sé einstaklega góður og samheldin.

„Já, það er í rauninni bara æðislegt hvað fólk tekur vel í þetta og hvað fólk er tilbúið að leggja verkefninu lið. Verkefnið hefur fengið mjög jákvæðar viðtökur enda eru allir að spyrja hvað sé verið að gera og vilja fá að vita meira. Það hlakkar öllum til, ekki síst krökkunum að senda jólasveininum bréfið, fólk getur ekki beðið eftir að fá að upplifa þetta,“ segir Einar og bætir við.

„Ég hugsa að þetta sé nokkuð einstakt, ekki bara á Íslandi heldur víðar. Ég held að það sé ekki algengt að það sé heill landshluti, sem tekur jólin með svona mikilli gleði og metnaði í þeim tilgangi að veita fjölskyldunum einstaka upplifun.“

Samfélagsmiðla Jólalestar Vestfjarða má finna á Facebook og Instagram

Börn að senda bréf til jólasveinsins í einum póstkassanum. Einar Mikael fylgist spenntur með.Aðsend
12 svona "alvöru" jólasleðar verða smíðaðir og fara á jafn marga staði á Vestfjörðum.Aðsend


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×