Umboðsmaður Alþingis hefur haft svokölluð gul herbergi, eða hvíldarherbergi, í grunnskólum til skoðunar undanfarna mánuði eftir að umræða skapaðist í samfélaginu um að nemendur væru látnir dúsa í slíkum herbergjum í lengri tíma. Þá hefur verið greint frá tveimur slíkum málum sem hafa verið kærð til lögreglu, annars vegar í Garði og hins vegar á höfuðborgarsvæðinu.
Fréttastofa hefur rætt við fjölda foreldra sem greint hafa frá hræðilegri reynslu barna sinna af slíkum herbergjum, sem og við fyrrverandi starfsmenn skóla sem sagt hafa við fréttastofu að þeir sjái eftir að hafa ekki látið vita af notkun slíkra herbergja. Foreldrar sem fréttastofa hefur rætt við vísuðu allir til skóla á suðvesturhorni landsins, allt frá Hveragerði yfir í Mosfellsbæ og svo yfir á Suðurnes.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið úrskurðaði þá í máli barnsins í Garði, sem hefur verið kært til lögreglu, og segir í úrskurðinum að notkun hvíldarherbergis af því tagi sem lýst var í úrskurðinum samrýmist ekki ákvæðum laga um grunnskóla. Hefur ráðuneytið óskað eftir því við skóla landsins að notkun slíkra herbergja verði hætt án tafar. Lýsingarnar á herberginu voru slíkar að um væri að ræða litla, gluggalausa kompu.
Á úrskurðurinn því ekki endilega við öll hvíldarherbergi og segir í bréfi umboðosmanns að með tilliti til fjölbreytileika hvíldarherbergjanna sé afstaða ráðuneytisins ekki nógu skýr um hvað það er í núverandi framkvæmd skólanna sem ekki samrýmist lögum um grunnskóla né leiðbeinandi um hvernig taka megi betur á þeim málum.
Fyrir ritun bréfsins heimsótti umboðsmaður þrjá grunnskóla á suðvesturhorni landsins í nóvember en hafði áður óskað eftir upplýsingum um notkun slíkra herbergja hjá sautján sveitarfélögum. Var tilgangur heimsóknanna fyrst og fremst að skoða hvers konar rými væru nýtt til aðskilnaðar og ræða við starfsmenn skólanna um notkun herbergjanna.
Skrifar umboðsmaður strax í upphafi bréfsins að mat hans sé að í heimsóknunum hafi ekki komið fram vísbendingar um að nemendur væru kerfisbundið látnir dvelja í einrúmi, gegn vilja sínum, í svo langan tíma að hann jafnaðist við frelsissviptingu. Tekur hann þó fram að með þessu sé ekki tekin afstaða til einstakra mála.