Viðskipti innlent

Hótelin með snjóhengju skuldbindinga eftir faraldurinn

Heimir Már Pétursson skrifar
Eftir ördeyfð í á annað ár fóru ferðamenn loksins að skila sér aftur til Íslands í sumar og hótel sem flest voru lokuð vegna faraldursins gátu opnað dyr sínar á ný.
Eftir ördeyfð í á annað ár fóru ferðamenn loksins að skila sér aftur til Íslands í sumar og hótel sem flest voru lokuð vegna faraldursins gátu opnað dyr sínar á ný. Stöð 2/Egill

Formaður félags Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir að það muni taka hótelin tíma að koma rekstrinum í jafnvægi eftir hrun ferðaþjónustunnar í covid faraldrinum. Bankar og fleiri aðilar þurfi að sýna þeim skilning og stjórnvöld að jafna stöðu hótelanna gagnvart leiguíbúðum og hótelskipum.

Flest hótel neyddust til að hætta rekstri í á annað ár fljótlega eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á og hófu ekki rekstur fyrir alvöru á ný fyrr en í sumar. Þegar starfsemi hófst aftur reyndist mörgum erfitt að fá til sín starfsfólk að sögn Kristófers Óliverssonar formanns Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu. Fyrir faraldurinn hafi hótelin verið í harðri samkepnni við Airbnb íbúðir og aðrar leiguíbúðir.

Nú hafi hótelskip bæst við sem sigli með þúsundir farþega sem flogið væri til landsins í kringum landið.

„Það þarf að jafna leikinn. Það er það sem við tölum um fyrst og fremst. Þannig að hótelin hafi sitt svigrúm í þessu. Ef þú horfir hér í kringum þig þá er Airbnb í öðru hverju húsi. Framboðið af herbergjum þar var orðið talsvert meira en hótelherbergi,“ segir Kristófer.

Kristófer Óliversson annar eigenda Center hótelanna segir ekki allt komið í blóma þótt ferðamennirnir séu farnir að láta sjá sig aftur.Stöð 2/Egill

Hótelin borgi um tvær milljónir á ári í skatta og skyldur af hverju venjulegu hótelherbergi á sama tíma og Airbnb og hótelskipin greiði mun minna til samfélagsins. Framtíð hótelanna ráðist mikið af rekstrarumhverfinu.

„Það skiptir okkur máli hvernig farið verður til dæmis með gistinóttaskatt. Ég var kominn langt á leið með að byggja með traustum aðilum 150 herberja hótel á Akureyri. Ef ég ætti að endurtaka það núna myndi ég leigja mér skip og sigla hringinn í kringum landið,“ segir Kristófer.

Kristófer segir hótelin greiða um tvær milljónir króna í skatta og skyldur af hverju hótelherbergi á ári.Stöð 2/Egill

Það muni taka hótelin tíma að ná sér að fullu á ný með allar sínar skuldbindingar eftir faraldurinn.

„Það hangir yfir okkur öllum sem erum með svona fasteignir snjóhengja sem menn leysa ekki nema í góðu samstarfi við banka og aðra sem koma að þeim málum,“ segir Kristófer Óliversson.


Tengdar fréttir

Hótelin skattlögð langt umfram AirBnB og hótelskip

Enn ríkir töluverð óvissa um rekstur hótela þótt ferðamönnum hafi fjölgað í sumar og haust. Formaður Félags fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu segir að bæta þurfi samkeppnisstöðu hótela gagnvart leiguíbúðum fyrir ferðamenn og skemmtiferðaskipum sem sigli í vaxandi mæli í kringum landið.

Edition vill vera hjartslátturinn í nýrri miðborg Reykjavíkur

Nóttin í svítu á nýjasta hótelinu í Reykjavík kostar á bilinu 117 þúsund upp í rúma eina og hálfa milljón. Þar er boðið upp á einstakt útsýni yfir gömlu höfnina og ýmsa aðra þjónustu sem prýðir fimm stjörnu hótel.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×