Menning

Jón Hjartar­son hlaut Bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar

Atli Ísleifsson skrifar
Jón Hjartarson og Dagur B. Eggertsson á tröppum Höfða í dag.
Jón Hjartarson og Dagur B. Eggertsson á tröppum Höfða í dag. Reykjavíkurborg

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, afhenti í dag Jóni Hjartarsyni, leikara og skáldi, Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í við hátíðlega athöfn í Höfða í Reykjavík. Jón hlaut verðlaunin fyrir handrit sitt að ljóðabókinni Troðningar, en bókin kom út í dag.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að alls hafi borist 49 óbirt ljóðahandrit í samkeppnina í ár og hafi þau verið send inn undir dulnefni.

„Aðeins var umslag með réttu nafni verðlaunahöfundar opnað. Reykjavíkurborg hefur veitt Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar frá árinu 1994 og hafa þau verið veitt fyrir ljóðahandrit eingöngu frá 2004. Reykjavík bókmenntaborg UNESCO hefur umsjón með verðlaununum.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði við athöfnina í Höfða að Jón væri vel að verðlaununum kominn, ekki væri langt síðan ljóðinu var spáð ótímabærum dauðdaga „en það hefur margsannað sig hversu ótímabær sá spádómur var, því gróskan í ljóðlistinni hefur sjaldan verið meiri en undanfarin ár“.

Jón Hjartarson

Jón Jóhann Hjartarson er fæddur 20. janúar 1942 á Hellissandi. Hann útskrifaðist sem kennari frá Kennaraskóla Íslands 1965 og lauk leikaraprófi frá Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur 1968. Jón var jafnframt við framhaldsnám í Berlín 1984.

Jón hefur samið fjölda leikrita bæði fyrir börn og fullorðna, auk barna- og unglingabóka. Fyrsta leikrit hans, Afmælisboðið, er frá 1969. Hann samdi leikgerð upp úr skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Mávahlátri, sem sett var upp hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1998. Hann hefur bæði leikstýrt verkum sínum og annarra hjá atvinnuleikhúsum og áhugaleikhópum. Nú síðast kom út ungmennabókin Auga í fjallinu sem Skrudda gaf út 2017.

Jón sagði við athöfnina í dag að hann hafi löngum dáð þjóðskáldin okkar, eins atómskáldin „ og ég dái þá höfunda sem nú fást við ljóð. Og mér sýnist íslensk ljóðagerð dafna býsna vel sem er gott. Ljóðið ratar til sinna og setur veruleikann svolítið úr skorðum sem er hollt“.

Umsögn dómnefndar

Í dómnefnd sátu: Sif Sigmarsdóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Eyþór Árnason.

Í umsögn dómnefndar segir „Troðningar eftir Jón Hjartarson er kraftmikið verk um hið óvænta í hinu augljósa, fegurðina í hversdagsleikanum og mikilfengleika þess smáa. Í bókinni fer Jón um víðan völl. En hvort sem yrkisefnið er náttúran, sagan eða samtíminn er sjónarhornið ávallt óvænt. Þekkt minni eru færð í nýjan búning. Kímnar hvunndagsmyndir eru dregnar upp innan um vísanir í stórskáldin. Hið hversdagslega verður ljóðrænt, hið háfleyga hversdagslegt.

Í ljóðum sínum sýnir Jón fram á að í lífinu leynist margbreytileikinn oft í því einfalda. Þann mótsagnakennda sannleika má heimfæra á verkið Troðninga. Í einföldum myndum sem settar eru saman af hugkvæmni, hlýju og kímni leynist svo miklu meira en virðist við fyrstu sýn,“ segir í tilkynningunni frá borginni.

Verðlaunahafar frá upphafi:

  • 2021: Jón Hjartarson - Troðningar
  • 2020: Ragnheiður Lárusdóttir - 1900 og eitthvað
  • 2019: Harpa Rún Kristjánsdóttir - Edda
  • 2018: Haukur Ingvarssonar - Vistarverur
  • 2017: Jónas Reynir Gunnarsson - Stór olíuskip
  • 2016: Eyrún Ósk Jónsdóttir - Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa
  • 2015: Ragnar Helgi Ólafsson - Til hughreystingar þeim sem finna sig ekki í samtíma sínum
  • 2014: Hjörtur Marteinsson - Alzheimer-tilbrigðin
  • 2013: Bjarki Karlsson – Árleysi alda
  • 2012: Dagur Hjartarson – Þar sem vindarnir hvílast - og fleiri einlæg ljóð
  • 2011: Sindri Freysson – Í klóm dalalæðunnar
  • 2010: Þórdís Gísladóttir – Leyndarmál annarra
  • 2009: Eyþór Árnason – Hundgá úr annarri sveit
  • 2008: Magnús Sigurðsson – Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu
  • 2007: Ari Jóhannesson – Öskudagar
  • 2006: Ingunn Snædal – Guðlausir menn - Hugleiðingar um jökulvatn og ást
  • 2004: Auður Ólafsdóttir – Rigning í nóvember
  • 2002: Sigurbjörg Þrastardóttir – Sólar Saga
  • 2000: Hjörtur Björgvin Marteinsson – AM 00
  • 1998: Bjarni Bjarnason – Borgin bak við orðin
  • 1997: Elín Ebba Gunnarsdóttir – Sumar sögur
  • 1994: Helgi Ingólfsson – Letrað í vindinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×