Tónlist

Hipsumhaps tekur Lög síns tíma út af Spotify um áramót

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Fanndís Birna Logadóttir skrifa
Fannar Ingi Friðþjófsson lagði allt undir við gerð nýjustu plötu Hipsumhaps.
Fannar Ingi Friðþjófsson lagði allt undir við gerð nýjustu plötu Hipsumhaps. Vísir/Vilhelm

Eftir áramót verður ekki hægt að hlusta á Hipsumhapsplötuna Lög síns tíma á Spotify eða öðrum streymisveitum. Platan er nú til sölu á síðu Hipsumhaps en verður ekki fáanleg frá 1. janúar. 

Síðan Hipsumhaps.is er komin í loftið og þar er hægt að eignast stafrænt eintak af plötunni áður en að hún fer út af streymisveitum þann 1. janúar 2022. Allur ágóði rennur til Votlendissjóðs,“ segir Fannar Ingi Friðþjófsson í samtali við Vísi. 

„Fólki finnst frekar djarft að ég sé að gera þetta við verk sem að ég hef lagt allt mitt í sölurnar við að skapa. En svo þegar samræðurnar eiga sér stað að þá er þetta fullkomið fyrir konseptið. Á endanum ræður það ferðinni.“

Langaði alltaf að spila meira

Fannar segir að þetta hafi verið rökrétt ákvörðun með þessa plötu. 

„Hún meikar bara sens. Lög síns tíma. Það er eiginlega ekkert annað í stöðunni svona þegar þú pælir í því.“

Myndin sem prýðir plötuna er listaverk byggt á ljósmynd Ragnars Axelssonar ljósmyndara, sem skrásett hefur bráðnun jöklanna hér á landi síðustu áratugi. Eins og fram hefur komið hér á Vísi lagði Fannar allt undir við gerð plötunnar. 

„Fljótlega eftir fyrstu plötuna fann ég mikla löngun til þess að taka upp meiri tónlist. Bæði gekk okkur vel, platan fékk mikla athygli, og á tónleikum vorum við kannski búnir að spila öll lögin okkar níu og langaði að spila meira. Þannig að við enduðum oftast á að spila fyrsta lagið aftur. Það var smá steikt.“

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið Þjást.

Þurfum að lifa í sátt

Hann segir að Votlendissjóður sé þakklátur fyrir framtakið.

„Núna vona ég bara að platan seljist vel svo að þeirra starfsemi fái að njóta góðs. Þetta samstarf okkar er öðruvísi leið til þess að ná mikilvægum skilaboðum til hlustenda,“ útskýrir Fannar.

„Í öllum þessum rússíbana við að vera tónlistarmaður í miðjum heimsfaraldri að þá spyr ég sjálfan mig stundum af hverju ég er að þessu og fyrir hverju stend ég. 

Þá er náttúran svolítið leiðandi þema því innan um okkar árekstra og átök að þá er hún alltaf æðri en okkar vandamál og við þurfum að læra að lifa í sátt og samlyndi með henni. 

Fólk er oft hrætt við það að ræða loftslagsmál og hlýnun jarðar en mér finnst það geta verið sameiningartákn fram veginn. Hugsa í lausnum.“

Fannar Ingi Friðþjófsson safnar fyrir góðan málstað með sölu plötunnar.Vísir/Vilhelm

Öll tækifærin sem fóru í vaskinn

12. nóvember næstkomandi verða Hipsumhaps tónleikar í Hörpu

„Þessir tónleikar eiga rætur að rekja til 8. apríl 2020 og miðahafar þaðan hafa þurft að bíða í meira en eitt og hálft ár til að komast á tónleika með okkur. Þannig þau eru búin að fá uppfærslu á gömlu miðunum - tvöfalt lengra show,“ segir Fannar um tónleikana.

„Ég hef lagt allt í sölurnar við að gera tónlist og elta drauminn. Tónleikarnir þann 12. nóvember verða táknrænir fyrir mig á svo marga vegu. Ég ætla að spila öll lögin mín eins og það sé í síðasta sin og hvet alla sem að fíla fyrstu plötuna, þessa plötu, og okkur almennt, til þess að fjölmenna og eiga góða kvöldstund. Við ætlum að taka út öll tækifærin sem að fóru í vaskinn síðasta eina og hálfa árið.“


Tengdar fréttir

Á­greiningurinn leystur og fagnað með tón­leika­ferða­lagi

Aðdáendur Hipsumhaps geta tekið gleði sína á ný því platan, Lög síns tíma, er orðin aðgengileg á streymisveitunni Spotify á nýjan leik eftir að hafa verið fjarlægð í síðustu viku. Það vakti mikla athygli þegar nýjasta plata hljómsveitarinnar var fjarlægð sökum ágreinings á milli Fannars Inga Friðþjófssonar, forsprakka hljómsveitarinnar og plötuútgáfunnar Record Records.

Hipsumhaps gefur út nýja plötu

Önnur breiðskífa Hipsumhaps er komin út ber heitið Lög síns tíma. Um er að ræða samtímaverk sem að hefur verið í vinnslu frá því að samkomubannið var sett á í mars á síðasta ári






Fleiri fréttir

Sjá meira


×