Janus og félagar björguðu stigi í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. október 2021 18:41 Janus Daði Smárason og félagar hans í Göppingen björguðu stigi gegn Íslendingaliði Melsungen. Harry Langer/DeFodi Images via Getty Images Janus Daði Smárason og félagar hans í Göppingen björguðu stigi gegn Íslendingaliði MT Melsungen með Arnar Freyr Arnarsson, Elvar Örn Jónsson og Alexander Petersson innanborðs í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur 26-26, en Göppingen var mest fimm mörkum undir í seinni hálfleik.
Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu mínúturnar, en fljótlega tóku gestirnir í Melsungen forystuna. Þeir komust fljótlega í fjögurra marka forystu í stöðunni 8-4, og héldu því forskoti út hálfleikinn. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 14-10, Melsungen í vil. Melsungen náði fimm marka forskoti í stöðunni 16-11, en þá komu fjögur mörk í röð frá heimamönnum í Göppingen og munurinn kominn niður í eitt mark. Melsungen náði aftur þriggja marka forskoti, áður en Göppingen jafnaði leikinn með þremur mörkum í röð. Liðin skiptust á að skora næstu mínútur, og það reyndist erfitt að skilja þau að. Melsungen virtist þó ætla að stela sigrinum og komst í tveggja marka forystu þegar rétt rúm mínúta var til leiksloka, en tvö heimamörk í röð björguðu stigi fyrir Göppingen. Elvar Örn Jónsson var markahæstur Íslendinga með þrjú mörk. Næstur kom Alexander Petersson með eitt, en Janus Daði og Arnar Freyr komust ekki á blað. Þetta var annað jafnteflið í röð hjá Göppingen sem situr í fjórða sæti deildarinnar með tíu stig eftir sjö leiki, fjórum stigum meira en Melsungen sem situr í því áttunda.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira