Stöðvuðu hópslagsmál á veitingastað Þorgils Jónsson skrifar 10. október 2021 08:10 Lögregla á höfuðborgarsvæðinu þurfti að sinna ýmsum útköllum í gærkvöldi og í nótt. Nokkrir fengu að gista fangageymslur. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að skerast í leikinn á veitingastað í Reykjavík á tíunda tímanum í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um hópslagsmál. Þar tókust á um átta til tíu manns, en engan sakaði og lögregla leysti málið á vettvangi.
Í dagbók lögreglu má ráða að talsverður erill hafi verið í gærkvöldi og í nótt þar sem fjölmörg útköll voru vegna samkvæmishávaða, slysa, ölvunar, átaka og umferðarbrota. Meðal annars var maður skallaður utan við skemmtistað í miðborginni, þannig að tennur hans brotnuðu. Gerandi var á brott þegar lögregla kom að, en sá slasaði var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku. Aðili sem var var viðriðin líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur, en neitaði að segja til nafns var handtekinn í þágu rannsóknar og fluttur á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Þar gaf hann loks upp nafn og kennitölu. Maðurinn verður, að sögn lögreglu, kærður fyrir að segja ekki til nafns eða framvísa skilríkjum að kröfu lögreglu. Þá var par handtekið á þriðja tímanum, eftir að hafa veist að farþega í leigubíl, valdið skemmdum á leigubifreiðinni. Þau neituðu að fara eftir fyrirmælum lögreglu og annað þeirra reyndi einnig að tálma lögreglu störf. Þau bæði vistuð í fangaklefa og fundust fíkniefni í fórum þeirra beggja. Þá féll kona af rafhlaupahjóli í miðborginni og var sjúkrabíll kallaður á vettvang. Loks má geta þess að lögregla var send að umferðaróhappi í austurborginni. Þar reyndist ökumaður ekki vera komin með aldur til þess að hafa ökuréttindi. Var málið afgreitt með aðkomu foreldra.
Lögreglumál Reykjavík Veitingastaðir Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira