Skoðun

Geir Jón skriplar á skötu

Jarl Sigurgeirsson skrifar

Kýs Sigurð Inga, framsóknarmann vegna verka Sjálfstæðismanna.

Geir Jón Þórisson, vinur minn, skrifaði grein í Morgunblaðið í gær þar sem hann tilkynnti þjóðinni þá ákvörðun sína að hann ætlaði að kjósa Framsóknarflokkinn. Það kom mér sem slíkt ekki á óvart enda ekki langt síðan hann tilkynnti alþjóð að hann væri hættur í Sjálfstæðisflokknum. Skýringin þá var sú að hans kristilega uppeldi væri ekki í samræmi við stefnu flokksins í orkupakkanum.

Það kom mér hins vegar á óvart að ástæðan, sem hann gefur fyrir stuðningi við Framsóknarflokkinn, sé að Sigurður Ingi hafi staðið sig svo vel í að fjölga ferðum með Herjólfi, tryggja sömu fargjöld óháð hvert væri siglt og fleira. Þar skriplar Geir Jón á skötu.

Ekki dettur mér í hug að hafa neina skoðun á því í hvaða flokki Geir Jón er, hvað flokk hann styður eða hvers vegna. Það væri nú samt sjálfsagt ekki til mikils mælst þó að Geir Jón leyfi þeim sem tryggðu Eyjamönnum þær miklu samgöngubætur, sem við nú þekkjum, að njóta sannmælis. Hið sanna er að það var í ráðherratíð Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og í bæjarstjóratíð Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins, sem árangur náðist. Þekkt er einnig aðkoma Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, að þeim verkum.

Fréttatilkynning um hinar stórkostlegu samgöngubætur var birt 27. október 2017. Kosningar fóru fram degi síðar og Sigurður Ingi varð ráðherra 30. nóvember það ár. Þannig er sannleikurinn í þessu.

Í fyrrgreindri viljayfirlýsingu, sem sjálfstæðismennirnir Jón Gunnarsson og Elliði Vignisson undirrituðu, voru talin upp helstu markmið samningsins og forsendur hans. Meðal þess sem þar kemur fram er að:

  • Skipið verði nýtt til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar lengur hvern sólarhring en nú er og gangi allt að 8 ferðir á dag í reglulegri áætlun þegar aðstæður krefjast.
  • Núverandi Herjólfur verði til reiðu sem varaskip fyrir ferjusiglingar í landinu eftir að ný ferja hefur siglingar.
  • Sama gjaldskrá gildi á báðum siglingaleiðum.
  • Núverandi fjárveiting til reksturs Herjólfs verði lögð til grundvallar nýs samnings. Þannig verði möguleg hagræðing, vegna rekstrar nýrrar Vestmannaeyjaferju, nýtt til að bæta samgöngur á milli lands og Eyja.
  • Fram fari þarfagreining á þjónustuþörf skipsins. Þarfagreiningin taki mið af þörfum samfélagsins en ekki eingöngu hámarksnýtingu.
  • Rekstur ferjusiglinga milli lands og Eyja sé almannaþjónusta og ekki hagnaðardrifin.
  • Rekstrarhagræðis verði gætt til hins ítrasta. Telji aðilar líklegt að útboð á almennum markaði leiði til aukins hagræðis samhliða þjónustuaukningu, verði Vestmannaeyjabæ það heimilt.

(Þeir sem vilja sannreyna þetta geta kíkt hér á fréttatilkynningu sem birtist deginum fyrir kosningar: Viljayfirlýsing undirrituð um rekstur ferju (eyjar.net))

Víst er að samgöngubætur þær sem nefndar hafa verið eru vissulega mikið framfaraskref. Fyrir þá sem horfa vilja til áframhaldandi uppbyggingar í samgöngum er ef til vill bara best að kjósa þann flokk sem raunverulega skilaði árangri. Sá flokkur heitir Sjálfstæðisflokkurinn og með því að setja X við D tryggjum við áframhaldandi uppbyggingu en ekki fækkun ferða og engar flugsamgöngur

Höfundur er frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×