Ég krefst réttlætis fyrir alla í ríku landi! Elín Fanndal skrifar 13. september 2021 06:01 Ágæti kjósandi! Mig langar að upplýsa þig um af hverju ég ákvað að bjóða mig fram í þriðja sæti fyrir Flokk fólksins á Suðurlandi. Mögulegt er að þú eigir samleið með mér í komandi kosningum af svipuðum ástæðum. Ég hef lengi, og hugsanlega rétt eins og þú, vonað að samfélag okkar fari nú að taka öflugar á málum láglaunafólks, öryrkja, aldraðra og í raun bara allra þeirra sem eiga um sárt að binda í okkar annars velmegnandi þjóðfélagi. Sjálf er ég komin af efnalitlu fólki,orðin 58 ára og er fyrst núna að sjá launin endast út mánuðinn með smá afgangi. Þeim árangri hef ég náð með því að vinna hörðum höndum frá 12 ára aldri, gjarnan tvöfalda vinnu. Ekki var í boði fyrir mig að ganga menntaveginn er grunnskóla lauk vegna fjárskorts fjölskyldunnar en það þótti svo sem ekkert tiltökumál í þá daga. En ég er heppin, ég hef haldið góðri heilsu og því getað unnið. Aðrir eru ekki eins lánsamir. Við hjónin fórum illa út úr efnahagshruninu 2008, eins og svo margir aðrir. Þess vegna, þó ekki sé allt í járnum nú eins og þá, sjáum við fram á að öllu óbreyttu, að skulda enn töluvert þegar við byrjum að nýta okkur ellilífeyri. Við erum ein þeirra sem sitja i fjötrum uppgreiðslugjalds hjá Íbúðalánasjóði. Við eigum ekki möguleika á að skuldbreyta lánum vegna þess að við getum ekki og höfum ekki geð í okkur að borga 4 milljónir til að fá láninu aflétt. Ellilífeyrir er skammarlega lágur og ef við höldum heilsu og viljum vinna með honum, skerðist hann. Þannig að möguleikar okkar á að geta ferðast og notið efri ára minnka umtalsvert nema að breytingar verði að veruleika. Raunveruleg loforð eða innantóm Flokkur fólksins mun strax hækka frítekjumark lífeyrisþega úr 25.000 kr. í 100.000 kr. vegna lífeyristekna og fella niður skerðingu á ellilífeyri vegna atvinnutekna. Þessu mikilvæga máli hafa núverandi stjórnarflokkar sýnt fullkomið áhugaleysi. Við þekkjum það flest sem orðin erum eldri en tvævetur að þeir hópar sem helst þurfa á breytingum að halda, fá jafnan mesta plássið fyrir kosningar eða öllu heldur mestan loforðaflauminn. Kosningabaráttan ber jú jafnan hástemmdar yfirlýsingar um hversu vel á nú að gera við þá einstaklinga sem alltof lengi hafa beðið þolinmóðir. Eftir kjördag líður þó ekki á löngu þar til kröfur þessa þjóðfélagsþegna um bætt kjör verða enn á ný að stórkostlegu vandamáli og aftur hefjast hástemmdar yfirlýsingar. Og einmitt nú um að kerfið riði bókstaflega til falls þegar þegnar með útborguð laun, sem rétt slaga um 100.000 kr. fram yfir atvinnuleysisbætur, óska eftir því að loforð um bætt kjör verði efnd. Púkinn á bitanum tútnar áfram út af innantómum og óefndum loforðum. Eitt af slagorðum yfirstandandi kosningabaráttu segir að Ísland sé „land tækifæranna.“ Ég get tekið heilshugar undir setninguna sem slíka en fyrir mér er hún þó eins og hver annar gjallandi. Hvar liggja tækifærin fyrir láglaunafólk sem nær aldrei eða illa endum saman? Fólk sem sér ekki leiðina út úr öngstrætinu? Öryrkjar og eldri borgarar sem fá ekki að vinna nema örorkubætur þeirra og lífeyrir sé skertur. Eigum við áfram að hunsa þetta fólk og segja að þau sem eru málsvarar þeirra haldi á lofti barlómi og bölsýni? Eða eigum við að reyna af festu og elju að koma kjörum þessara hópa í betra horf? Flokkur fólksins er með skýra stefnu í þessum efnum. Við viljum til að mynda nýtt, almannatryggingakerfi sem tryggir lágmarks framfærslu upp á kr. 350.000 á mánuði, skatta og skerðingalaust. Öryrkjar fái að reyna fyrir sér á vinnumarkaði í allt að tvö ár, án skerðingar á bótum. Við munum afnema með öllu himinhá uppgreiðslugjöld á húsnæðislánum frá Íbúðarlánasjóði. Við viljum gera efri ár að gæða árum, ekki kvíðaefni. Árangur Flokks fólksins á Alþingi Flokkur fólksins hefur þegar náð að fá samþykkt þrjú mikilvæg mál. Nú eiga heldri borgarar sinn hagsmunafulltrúa sem þau geta leitað til. Hagsmunafulltrúa er ætlað að vekja athygli á réttinda- og hagsmunamálum aldraðra almennt, jafnt á opinberum vettvangi sem hjá einkaaðilum, leiðbeina öldruðum um réttindi sín og bregðast við, telji hann að brotið sé á þeim. Hagsmunafulltrúi sem hefur frumkvæði og eftirlit með persónulegum högum allra heldri borgara, sérstaklega með tilliti til þess að koma í veg fyrir félagslega einangrun, næringarskort og almennt bágan aðbúnað þeirra. Lögblindir fá nú styrk til að eignast leiðsöguhunda og afnumdar hafa verið skerðingar á lyfjakjaupum aldraða og styrkir veittir til kaupa á hjálpartækjum fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja. Allt eru þetta mál sem hafa aukin lífsgæði í för með sér til handa þessum þjóðfélagshópum. Á Alþingi starfar nefnilega í umboði Flokks fólksins FÓLK sem hefur sýnt það og sannað að geta komið á umbótum; bjartsýni, þrautseigja og vilji er fyrir hendi til að knýja fram breytingar. Með þinni samstöðu og stuðningi getum við orðið fleiri þar sem munum halda áfram að berjast fyrir réttlátara þjóðfélagi fyrir alla með áherslu á þá sem minna mega sín. Við segjum fólkið fyrst svo allt hitt! Kær kveðja, Elín Fanndal, frambjóðandi í þriðja sæti fyrir Flokk fólksins á Suðurlandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun: Kosningar 2021 Flokkur fólksins Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun 18 mánuðir Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Halldór 15.06.2024 Halldór Skoðun Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins skrifar Skoðun Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun