Samstarf

Námsmenn sækja sífellt meira í rafbækur

Heimkaup
Thelma Björk Wilson framkvæmdastjóri þjónustu - og notendaupplifunar hjá Heimkaupum.
Thelma Björk Wilson framkvæmdastjóri þjónustu - og notendaupplifunar hjá Heimkaupum.

Allt að 60% ódýrara fyrir námsmenn að nýta sér rafbóksölu eða leigu. 

Framboð náms-rafbóka eykst í takt við vaxandi eftirspurn. Allt að 60% ódýrara fyrir námsmenn að nýta sér rafbóksölu eða leigu. Mikill áhugi fyrir þessum kosti

Thelma Björk Wilson, framkvæmdastjóri þjónustu - og notendaupplifunar hjá Heimkaupum segir rafbækurnar sífellt sækja í sig veðrið meðal íslenskra námsmanna, sér í lagi á háskólastigi. Heimkaup hefur lagt mikið kapp á að mæta vaxandi eftirspurn og tók upp sölu á rafbókum árið 2016. Nú er framboð titla komið yfir 7000 og hægt að fá rafbækurnar bæði keyptar og í leigu.

„Við finnum fyrir miklum áhuga á rafbókunum hjá okkur, enda talsvert hagstæðara fyrir námsmenn að kaupa bók eða leigja hana með þessum hætti. Með því að nýta sér þessa lausn geta námsmenn sparað sér á bilinu 20-60% í útgjöldum yfir hverja önn. Það vegur sannarlega þungt, auk þess sem það er ólíkt hentugra að vera með námsbækurnar á einum stað, í svokallaðri bókahillu, í tölvunni eða snjallsímanum og geta þannig opnað þær hvar og hvenær sem er.”

Thelma bendir á að rafbækurnar séu engir eftirbátar hefðbundinna skólabóka, hægt sé að glósa og strika yfir það sem þyki áhugavert og deila svo glósum með einföldum hætti. Að auki geri rafbókin lesanda kleift að slá inn leitarorð og einnig er valkostur þess sem notar, að fá bókina í formi hljóðbókar í gegnum þar til gert app sem fylgi með kaupunum. Þá sé rafbókarvæðingin til þess fallin að mæta æ háværari kröfum samtímans um sveigjanleika, en „bókasafnið” fylgi eigandanum hvert sem er, í tölvunni eða símanum. Þetta séu þægindi sem erfitt sé að horfa fram hjá í fari rafbókarinnar og því óhætt að fullyrða að rafbókin sé komin til að vera.

„Kostir rafbókanna eru ótvíræðir og þetta er sannarlega framtíðin. Stóru erlendu forlögin hafa bent á að með tíð og tíma verði sumar bækur eingöngu gefnar út rafrænt, með það fyrir augum að auðvelda lagerhald og stemma stigu við prentkostnað, svo ég tel okkur vera á hárréttri leið með því að bjóða viðskiptavinum Heimkaupa upp á sífellt stækkandi safn titla og auðvelda þannig fólki aðgengið. Við höfum bætt gríðarlega í safnið frá því að við byrjuðum árið 2016 og höldum ótrauð áfram.”

Samhliða því að bjóða upp á námsbækur á rafrænu formi til sölu hefur Heimkaup boðið upp á leigu á námsbókum og er hægt að velja um lengd lánstíma. „Þetta hefur mælst vel fyrir enda kemur þetta frábærlega út með tilliti til þeirra sem vilja spara aurinn enn frekar. Þá hefur viðkomandi aðeins aðgang að bókinni í ákveðinn tíma á meðan á námskeiði eða kúrs stendur. Þetta form er vaxandi hjá okkur og við sjáum að fólk kann að meta það að með þessu gefst kostur á að dreifa kostnaði yfir misserið frekar heldur en að leggja út fyrir öllu á einu bretti. Þetta er mjög lifandi umhverfi með fullt af tækifærum og verður spennandi að sjá hvernig þetta heldur áfram að þróast hjá okkur.”





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×