Lífið

Kim Kardashian birtist óvænt í brúðarkjól

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Kim Kardashian birtist óvænt á sviðinu ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum í gær, íklædd brúðarkjól.
Kim Kardashian birtist óvænt á sviðinu ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum í gær, íklædd brúðarkjól. Apple Music

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian kom óvænt fram í brúðarkjól í hlustunarpartýi fyrrverandi eiginmanns síns, Kanye West. Aðdáendur velta nú vöngum yfir því hvaða skilaboð fyrrverandi hjónin sendu með þessum gjörningi.

Kanye hélt sitt þriðja formlega hlustunarpartý vegna plötunnar Donda í gær. Aðdáendur hafa beðið í ofvæni eftir plötunni í allt sumar en útgáfudegi hennar hefur sífellt verið frestað.

Kim Kardashian, hefur sýnt fyrrverandi eiginmanni sínum mikinn stuðning í kringum útgáfu plötunnar og hefur hún til að mynda mætt í öll hlustunarpartýin.

Viðvera hennar vakti þó sérstaka athygli í gær fyrir þær sakir að hún sat ekki í áhorfendastúkunni, heldur birtist hún óvænt á miðju sviðinu í lokalaginu - íklædd Balenciaga brúðarkjól.

Aðdáendur keppast nú við við að lesa í þennan gjörning og velta vöngum yfir því hvort þetta þýði að fyrrverandi hjónin séu tekin aftur saman. Kardashian sótti um skilnað í febrúar á þessu ári eftir sjö ára hjónaband.

Viðburðurinn fór fram á Soilder leikvanginum í Chicago þar sem Kanye hafði gert líkan af æskuheimili sínu á miðju sviðinu. Þótt Kim hafi stolið senunni er óhætt að segja að margt annað hafi þótt áhugavert þetta kvöldið.

Þegar Kanye mætti inn á sviðið stóð hann í ljósum logum. Þá birtust tónlistarmaðurinn Marilyn Manson og rapparinn DaBaby við hlið Kanye á sviðinu en þeir eru báðir afar umdeildir fyrir gjörðir sínar.

Platan Donda er tíunda plata rapparans en óvíst er hvenær hún muni líta dagsins ljós. Markaðssetning í kringum plötuna á sér þó enga hliðstæðu og hefur platan þegar slegið met inni á streymisveitunni Apple Music.


Tengdar fréttir

Ó­út­gefin plata Kanye West slær nú þegar met

Nýjasta plata tónlistarmannsins Kanye West hefur slegið met inni á streymisveitunni Apple Music. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að platan hefur ekki ennþá verið gefin út.

Kanye hélt annað hlustunarpartý fyrir Donda

Kanye West hélt hlustunarpartý fyrir nýja plötu sína Donda sem átti upphaflega að koma út 23. júlí síðastliðinn. Í gær var tilkynnt að platan kæmi út í dag en nú virðist sem það muni ekki gerast fyrr en á morgun.

Kim mætti ó­vænt í hlustunar­­partý Kanye

Raunveruleikastjarnan og viðskiptakonan Kim Kardashian mætti óvænt í hlustunarpartý fyrrverandi eiginmanns síns, Kanye West, vegna plötunnar Donda sem átti að koma út í dag. Ekkert bólar þó á plötunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×