Körfubolti

Sáttur á Spáni en NBA draumurinn lifir góðu lífi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tryggvi Snær í leik með íslenska landsliðinu.
Tryggvi Snær í leik með íslenska landsliðinu. FIBA

Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason skrifaði á dögunum undir nýjan tveggja ára samning við spænska úrvalsdeildarliðið Zaragoza. Tryggvi Snær er á leiðinni inn í sitt fimmta tímabil á Spáni og er nokkuð sáttur með lífið. 

Þá er hann mjög spenntur fyrir komandi verkefnum með íslenska landsliðinu.

„Ég er að fara inn í mitt fimmta tímabil á Spáni svo já það má með sanni segja að mér líði bara vel hérna,“ sagði hinn 23 ára gamli Tryggvi Snær þegar Vísir heyrði í honum til að fara yfir nýja samninginn, íslenska landsliðið og framtíðina.

Hann var nýkominn heim af æfingu en ætlaði að skella sér í ræktina áður en þyrfti að mæta í leikmannamyndatöku fyrir komandi tímabil.

„Það er víst bara hluti af þessu.“

„Spænskan er eins og hvað annað tungumál fyrir mér. Maður búinn að vera hérna í fjögur ár svo það er eins gott maður hafi lært eitthvað á öllum þeim tíma,“ svaraði risinn úr Bárðardalnum aðspurður hvort spænskan væri ekki upp á tíu.

Tryggvi Snær, sem er uppalinn á Svartárkoti í Bárðardal, hefur verið á Spáni frá árinu 2017 þegar hann samdi við Valencia. Hann gekk svo í raðir Zaragoza tveimur árum síðan og er mjög sáttur. 

Eftir að hafa lent í 3. sæti tímabilið 2019-2020 endaði liðið tíu sætum neðar eða í 13. sæti á síðustu leiktíð. Tryggvi Snær - sem skoraði 7,3 stig að meðaltali í leik á síðasta tímabili ásamt því að taka 4,8 fráköst - segir metnaðinn töluvert meira en það.

„Markmiðið er alltaf að komast hærra. Fyrir okkur er EuroLeague næsta skref, markmiðið er að komast þangað. Í þessari deild þarf maður samt alltaf að vinna fyrir sínu, það fæst ekkert gefins.“

„Zaragoza er með mjög flott lið, bæði fyrir mig til að vinna með sem og í kringum mig. Ég er með þjálfara sem hefur mikla trú á mér og það sést að félagið hefur einnig sömu trú á minni getu.“

NBA draumurinn lifir enn

Tryggvi Snær spilaði með tvo leiki með Toronto Raptors í sumardeild NBA sumarið 2018. Sá draumur lifir enn þó miðherjinn sé lítið að velta því fyrir sér dag frá degi.

„Maður tekur einn dag fyrir í einu. Eins og staðan er í dag er EuroLeague markmiðið þó maður vonist alltaf eftir hringingunni frá Bandaríkjunum. Það er samt ekki eitthvað sem ég er að sækjast eftir þannig séð. Ætla bara að sjá hvernig málin þróast.“

„Ég er að spila í ACB-deildinni á Spáni í dag, einni af bestu deildum Evrópu svo það er mikil athygli á deildinni og alltaf verið að fylgjast með. Ég er samt ekki mikið að spá í því, ég geri bara mitt og leyfi þessu að gerast þegar þar að kemur. Ég tel mig samt vera á mjög góðum stað til að bæta mig og leik minn þannig að ég komist á það stig sem þarf til að komast inn í NBA-deildina.“

Telur landsliðið á réttri braut

Tryggvi Snær var í stóru hlutverki er Ísland tryggði þátttöku sína í undankeppni HM 2023. Liðið lék alls fjóra leiki, tvo gegn bæði Svartfjallalandi og Danmörku í forkeppni undankeppninnar.

Eftir stórt tap gegn Svartfjallalandi komu tveir sigurleikir gegn Dönum sem og leiðinlega naumt tap gegn Svartfellingum þar sem Tryggvi Snær skoraði 21 stig. Alls skoraði hann 45 stig í leikjunum fjórum ásamt því að taka 26 fráköst.

„Persónulega var ég nokkuð sáttur með leikina gegn Svartfjallalandi og Danmörku. Það er alltaf að breytast hvernig maður er staðsettur í landsliðinu en mér fannst liðið líta mjög vel út í þessum síðasta glugga. Erum búnir að vera byggja upp flott og fallegt lið sem vonandi getur gert góða hluti.“

Háloftabaráttan.FIBA

Ísland var án Martins Hermannssonar og Jóns Axels Guðmundssonar. Liðið lék vel þó það hafi vantað tvo máttarstólpa í liðið, ef frá er talinn fyrsti leikurinn þar að segja.

„Það er mjög jákvætt að ná að spila svona vel án þeirra tveggja. Ég var mjög hamingjusamur með þennan landsliðsglugga. Við spiluðum virkilega vel og svo er alltaf gaman að hitta strákana í landsliðinu. Þegar allir eru með þá getum við gert mjög flotta hluti svo það verður spennandi að sjá hvernig okkur mun ganga þegar allir komast á sama tíma.“

Að endingu var Tryggvi spurður út í kórónuveirufaraldurinn á Spáni og hver staðan væri þar í dag.

„Það er allt hægt og rólega að jafna sig hérna. Spánverjinn er duglegur að nota grímu enda grímuskylda á öllum stöðum svo maður er bara alltaf með hana á sér. Hvað varðar upphaf tímabils held ég að það megi vera setið í helmingi sætanna í höllunum, fer samt eftir svæðum og fjölda smita.“

„Maður vonast svo til þess að þetta verði allt orðið eðlilegt hvað á hverju, að það sé hægt að spila með fullar hallir og hafa gaman,“ sagði Tryggvi Snær Hlinason, miðherji Zaragoza og íslenska landsliðsins í körfubolta, að endingu.


Tengdar fréttir

Tryggvi Snær framlengir við Zaragoza

Tryggvi Snær Hlinason verður áfram í herbúðum Casademont Zaragoza í spænsku ACB deildinni út árið 2023, en hann skrifaði undir nýjan tveggja ára samning í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×