Lífið

„Excuse me“ lúsmý en hvað eigum við eiginlega að gera?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Lífið tók á tali húðlækni, lyfjatækni, grasalækni og meindýraeyðir og fengu ráðleggingar varðandi lúsmý. Einnig tókum við saman nokkur vel valin húsráð sem hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum þessa dagana. 
Lífið tók á tali húðlækni, lyfjatækni, grasalækni og meindýraeyðir og fengu ráðleggingar varðandi lúsmý. Einnig tókum við saman nokkur vel valin húsráð sem hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum þessa dagana. 

Eins fagnandi og landinn virðist taka sumrinu góða þá viðurkennist það fúslega að þessi litla fluga, sem elskar að næra sig á blóði okkar, er aðeins að drepa stemmninguna.

Sumarbústaðarferð fjölskyldunnar er í einhverjum tilvikum ekki glædd eins miklum ævintýraljóma eins og fólk gerði sér kannski vonir um.

Fjölskyldan sefur sveitt með lokaða glugga í vel girtum ullarnærfötum. Vifturnar hamast í hverju horni og lavender bleyttar grisjur berjast utan í veggina. 

Þeir sem ekki eru andvaka vegna bita og kláða sofa ekki fyrir látunum í viftunni nú eða hátíðnihljóðinu úr bilaða tækinu sem afi keypti á netinu.

„Excuse me“ lúsmý en hvað eigum við eiginlega að gera?

Hvað virkar og hvað ekki?

Internetið glóir af allskyns ráðum, misvísindalegum og misgáfulegum auðvitað en flestir sem hafa orðið fyrir barðinu á blóðþyrstu og aðeins of uppáþrengjandi lúsmýinu vilja heyra þetta allt.

Förum aðeins yfir þetta.


Ljós fatnaður og kolagrill

Húðlæknirinn Jenna Huld Eysteinsdóttir segir mikilvægt að fólk kynni sér vel hvernig best sé að fyrirbyggja bitin sjálf og þar sé að mörgu að huga.

Til dæmis geti klæðnaður skipt miklu máli.

Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni segir mikilvægt að fólk hugi vel að fyrirbyggjandi aðgerðum þegar kemur að lúsmýi. 

„Það er gott ráð að ganga í ljósum langermabolum og síðbuxum, sokkum og skóm utandyra, einkum í ljósaskiptunum. Dökkur klæðnaður laðar flugurnar meira að, líklega vegna meiri hita.“

Flugnafælandi krem, eða úða sem innihalda efnið DEET, segir hún mjög áhrifarík til að fyrirbyggja bitin en þó sé ráðlegt að nota efnið í litlu magni þar sem DEET er talið geta haft neikvæð áhrif á heilsuna í of stórum skömmtum.

Fólk ætti einnig að verða sér úti um flugnagildrur en ýmiskonar gildrur eru fáanlegar í dag.

Sumir nota til dæmis kolagrill en lyktin er talin fæla flugurnar frá.

Aðspurð út í hvað best sé að gera þegar bitin eru komin segir hún mikilvægt að sótthreinsa vel og kæla.

Í verstu tilvikunum eftir bit mælir hún eindregið með því að fólk leiti sér læknisaðstoðar en annars ættu ólyfseðilsskyld ofnæmislyf og sterakrem að virka vel.


Sultugrisjur með ilmkjarnaolíum

Sigríður Jakobsdóttir lyfjatæknir og starfsmaður í Lyf og heilsu úti á Granda segir eftirspurnina eftir vörum tengdum lúsmýi mjög mikla og eru vörur eins og armbandsúr og ýmiskonar fælur löngu uppseldar.

Er þetta meira enn í fyrra?

Tssssst. Tsssst. Það er eins gott að spreyja sig vel, ætli maður ekki að lenda illa í lúsmýinu.

„Ætli þetta sé ekki svipað. Það er alveg sama hvað við pöntum, það selst allt,“ segir Sigríður. Vinsælast segir hún vera sérstök sprey sem eigi að fæla frá lúsmý. En flest innihaldi þau efnið DEET. Hún segir þrjár tegundir vera vinsælastar og misjafnt sé hvernig nota megi spreyin.

„Yfirleitt er hægt að spreyja þeim á líkamann, í glugga eða á staði sem þú vilt verja.“

Vörnina í spreyjunum segir hún yfirleitt virka í um átta klukkustundir en starfsfólk leiðbeini fólki um hvað best henti hverjum.

Venjuleg flugnanet virka ekki á lúsmýið að sögn Sigríðar og mælir hún því frekar með fínum grisjum.

Við höfum verið að mæla með sultugrisjum. Það er sniðugt að bleyta þær með ilmolíum eða einhverjum blöndum eins og lavender og setja til dæmis fyrir glugga. Flugan kemst ekki í gegn en þær ná samt að lofta.

Aðspurð út í B vítamín sem mælt hefur verið með til inntöku segist hún ekki sjá mikla hreyfingu á því undanfarið en fólk sé mikið að verða sér út um ofnæmislyf eins og Lóritín og sterakremið Mildison.


Sérblönduð olía frá Jurtaapótekinu

Kolbrún grasalæknir og eigandi Jurtaapóteksins segist fá margar fyrirspurnir út í vörur tengdar lúsmýi en fólk sé jafnvel of seint að huga að fyrirbyggjandi aðgerðum. 

Kolbrún grasalæknir segir fólk yfirleitt byrja fyrst að hugsa um fyrirbyggjandi aðferðir þegar það hefur verið bitið af lúsmýi. 

„Það er meira um að fólk sé að koma til okkar eftir að það er bitið og fer þá að hugsa um að kaupa eitthvað á bitin og til þess að fæla lúsmýið frá,“ segir Kolbrún.

Jurtaapótekið hefur þróað sína eigin blöndu sem heitir Fríja og segir Kolbrún að blandan hafi virkað mjög vel til þess að fæla frá lúsmý.

Þetta er blanda sem heitir Fríja og það má spreyja henni á allt og í raun eina sem þarf til.

Til þess að vinna á lúsmýbitunum mælir hún með sérblandaðri olíu frá Jurtaapótekinu sem er sótthreinsandi og heitir Fönn.

„Það er mjög gott að bera þessa blöndu á sjálf bitin því að hún er mjög sótthreinsandi og virkar líka vel við sýkingum.“ 

Að lokum bætir Kolbrún því við að alltaf sé gott að taka líka inn brenninetlu sem fæst bæði sem te eða í hylkjum en brenninetluna segir hún góða við óþolsviðbrögðum.


Net fyrir glugga og hátíðnihljóð

Meindýrafræðingurinn Guðmundur Óli Scheving flytur inn sérstök net til að setja fyrir glugga, hátíðnitæki og sprey til að fæla frá lúsmý. 

Meindýrafræðingurinn Guðmundur Óli Scheving var í viðtali fyrir stuttu í Brennslunni á FM957 þar sem hann sagði að landsmenn þyrftu að læra að umgangast lúsmýið og læra að verja sig.

Sjálfur flytur Guðmundur inn vörur sem eiga að verja fólk fyrir lúsmýi en í samtali við Vísi segir hann eftirspurnina hafa verið það mikla að nú sé allt uppselt. 

Ég fæ ekki vörur fyrr en í næstu viku, það seldist allt upp. 

Sérstök net til að setja fyrir glugga segir hann hafa verið mjög vinsæl en þau séu mjög fín net sem hann mæli sterklega með fyrir sumarbústaðaeigendur.

Einnig segir hann hátíðnihljóð fæla flugurnar í burtu og komin séu á markað góð tæki sem hengja má utan á sumarbústaði eða aðra viðverustaði. Tækin gefi frá sér hljóð sem fæli frá skordýr og lúsmý en hljóðið trufli almennt ekki fólk. 

Sprey sem unnið er úr afrísku sólblómi segir Guðmundur Óli hafa reynst vel sem flugnafæla. Flugurnar finni mikla og sterka lykt af efninu sem trufli ekki fólk. 


Svo eru það öll húsráðin

Áður en haldið er lengra er ekki vitlaust að fara aðeins yfir skilgreiningu orðsins húsráð samkvæmt Wikipedia, frjálsa alfræðiritinu. 

Húsráð eru ráð sem eru misvel til þess fallin að teljast til ráða. Sum húsráð eru þó þannig að þau eru reynsla kynslóðanna sem hafa fylgt ættum eða þjóðum mann fram af manni. Stundum er erfitt að gera upp á milli bábilju og raunverulegra ráða, því sum húsráð eru það furðuleg að þau teljast frekar til fyndni en annars. En stundum fer allt saman, ráð, fyndni og virkni. Allt fer það þó auðvitað eftir hverju ráði fyrir sig og raunverulegum afleiðingum þess.

1. Ilmolíur 

Eitt af algengustu ráðunum til að fæla frá lúsmýið virðist vera ilmolíur. Hvort sem fólk notast við sérstakar blöndur, hreinar olíur eða útbýr sínar eigin blöndur.

 Lavenderolía, sítrónuolía, sítrónugras og tea tree olía eru þær olíur sem oftast eru sagðar hafa fælandi áhrif á lúsmý en einnig hafa verið nefndar eucalyptus- og piparmyntuolía.

Sumir blanda ilmkjarnaolíunum í vatn og setja í spreybrúsa á meðan aðrir setja þær beint í grisjur, tuskur eða á ákveðna fleti. Einnig er sniðugt að setja blöndu í ilmolíulampa og hafa kveikt á honum á kvöldin og nóttunni. 

Ilmkjarnaolíurnar virðast hjálpa í einhverjum tilvikum en þó virðast hörðustu ilmkjarnadrottningar vera við það að gefast upp.

Setja ilmkjarmaolíur og vatn í spreybrúsa. Til dæmis tea tree eða lavender. Spreyja í rákirnar á gluggakistum daglega, því þær fela sig þar. Spreyja alla glugga og hurðarkarma þannig að þær fælist frá því að koma inn. Byggja sér svo neðanjarðarbyrgi, dósa sig upp og flytja þangað ef þær koma bara samt. - Þórunn Antonía 

2. Net

Flugnanetin. Eins og áður hefur komið fram þá virðast venjuleg flugnanet ekki duga til þess að halda frá lúsmý en fínni net hafa verið fáanleg í búðum. Mælt er með því að setja netin fyrir glugga. 

Sumir virðast hafa tröllatrú á netunum meðan aðrir mæla einfaldlega með því að flýja þennan litla, lúmska skaðvald í öruggari landshluta. 

Ferðast um Vestfirði, ekkert lúsmý þar! - Magnús Hafliðason

3. Viftur 

Viftur hafa verið vinsælar í baráttunni við lúsmý og selst upp á mörgum stöðum. Mælt er með því að hafa viftur í því rými sem sofið er í og beina þeim að gluggunum. 

Eins og með svo mörg húsráðin þá hafa einhverjir þróað þau áfram og gert að sínum.

Spila tónlist mjög hátt og dansa nútímadans með viftu í fanginu. Þetta þarf að gera alla nóttina. Ef þetta virkar ekki þá hefur reynst vel að tæma ísskápinn og sofa í honum. - Hreinn Óskarsson

4. B vítamín og ofnæmislyf

Mælt hefur verið með inntöku B vítamíns til að fyrirbyggja bit sem og ofnæmislyf til að minnka eða koma í veg fyrir ofnæmisviðbrögð eftir bit. 

Þeir sem hafa enga trú á einhverskonar töfluinntöku deyja þó ekki ráðalausir, ó nei.  

Kallinn segir gin og tonic og ekki spara ginið! - Rúna Guðmundsdóttir

5. Heitar teskeiðar og laukur

Húsráðin eru óteljandi og aðferðirnar þeim mun fleiri. Á meðan einhverjir láta ilmkjarnaolíur duga þá eru aðrir sem skera niður lauk og raða í gluggakistuna, jú eða í kringum rúmið. 

Einnig hefur verið mælt með því að sótthreinsa bit og kæla til að forðast kláða og bólgur en sumir mæla eindregið með því að setja sjóðandi heita teskeið á bitin. Þessi tiltekna aðferð er meira að segja bara töluvert vinsæl, ef marka má ummæli á Facebook síðum sem tileinkaðar eru þessari litlu sætu flugu. 

Maður lifandi, ekki er öll vitleysan eins. 

En fyrir þá sem einfaldlega nenna þessu ekki...

Flýja land! - Steindór Gíslason

Það er nú ekkert nema viðeigandi að enda þennan pistil með Litlu flugunni hans Sigfúsar Halldórssonar sem vissulega veitir nú mun meiri gleði sú ofangreinda. 

Og ef ég væri orðin lítil fluga

Ég inn um gluggann þreytti flugið mitt.

Og þó ég ei til annars mætti duga

Ég eflaust gæti kitlað nefið þitt.


Tengdar fréttir

Ekki sniðugt að klappa lúsmýi frekar en geitungum

„Ég var að lenda í fyrsta skipti í þessari pest, þessu lúsmý. Ég hef séð fullt af myndum en hef alltaf sloppið við þetta, en ég slapp ekki núna,“ segir útvarpsmaðurinn Rikki G í Brennslunni í gær.

Tuttugu ómissandi hlutir fyrir ferðalag um Ísland

Hvað þarf að taka með í ferðalagið, fyrir utan grunn útilegubúnað og góða skapið? Makamál saman lista yfir 20 hluti sem væri sniðugt að taka með í útileguna eða ferðalagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×