Makamál

Hundrað íslensk útilegulög fyrir ferðaþyrstan landann

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Ef það er eitthvað sem er ómissandi í útileguna þá er það góð íslensk útilegutónlist. 
Ef það er eitthvað sem er ómissandi í útileguna þá er það góð íslensk útilegutónlist.  Getty

Halló sumarfrí, sæla, ást og ævintýr. Önnur stærsta ferðahelgi ársins er nú handan við hornið og flesta ferðalanga farið að kitla í útileguhjartað. Talandi um útilegu...

Lyktin af grasinu, af tjaldinu, grillaðar pylsur, ullarpeysur, klístraðir sykurpúðar og Einar frændi með gítarinn að syngja þjóðhátíðarlagið '97 með ævintýralega væmið blik í auga. 

Eftir alltof marga mánuði af einhverskonar samkomutakmörkunum eru engin takmörk fyrir því hversu fagnandi við tökum á móti þessu dásamlega frelsi og íslenska sumri.

Frelsið er yndislegt... ekki satt? 

Á meðan einhverjir halda upp á brúðkaupsafmælin eru aðrir sem hugsa til gamalla elskenda fullir af eftirsjá og fortíðarþrá.

 Vilja reyna aftur. 

Gamli vinahópurinn, sem er núna allur á lausu, ætlar sko að hafa gaman. Allir með spánýjan útilegubúnað, í ný vöxuðum Barbour jökkum og búnir að versla besta grillkjöt sem völ er á. 

Nú skal horfa fram á veginn, gleyma vandamálum fortíðarinnar.

 Þangað til klukkan verður trúnó, tásurnar kaldar og majonesan gul.

Við sköpum yfirleitt bestu minningarnar í ferðalögum. Hvort sem það er í útilegu með bestu vinunum eða í sumarbústað með fjölskyldunni. Tónlistin spilar þar stóran sess. Hún gefur, gleður, peppar og kveikir á allskonar tilfinningum. 

Makamál tóku saman lagalista með hundrað íslenskum lögum sem eiga það öll sameiginlegt að fjalla á einhvern hátt um ástina og vera sérstaklega útileguvæn. 

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast lagalistann Íslensk útileguást hér fyrir neðan: 


Fyrir ástarþyrsta ferðalanga er einnig hægt að nálgast fyrir lagalista Makamála hér fyrir neðan: 

SEXÍ LISTINN

ÁSTARSORG

ÍSLENSK ÁSTARLÖG


Ertu búin(n) að pakka öllu fyrir helgina? 


Tengdar fréttir

Kynþokkafyllstu lögin: Sjáðu lögin sem koma þeim til

Tónlist hefur óneitanlega mikil áhrif á andrúmsloftið og stemmninguna hverju sinni. Jólalögin koma okkur í jólaskap. Við grátum í koddann við sorgleg ástarlög og hlustum á taktfasta og peppandi tónlist þegar við erum að hreyfa okkur. Svo er það kynþokkinn!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×