Heimsmarkmiðin

Hjálparstarf kirkjunnar hlýtur styrk til mannúðaraðstoðar í Sýrlandi

Heimsljós
Hjálparstarf Kirkjunnar

Styrkurinn er hluti af samstarfi utanríkisráðuneytisins við íslensk félagasamtök í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð.

Á dögunum veitti utanríkisráðuneytið Hjálparstarfi kirkjunnar styrk að upphæð tíu milljónir króna til mannúðaraðstoðar í Sýrlandi. Þar hafa sem kunnugt er átök staðið yfir linnulítið í rúman áratug og þörfin fyrir mannúðaraðstoð er gífurleg. Að mati Sameinuðu þjóðanna er talið að um ellefu milljónir íbúa þurfi á aðstoð að halda.

Áhersla stuðningsins sem Hjálparstarf kirkjunnar veitir er að tryggja vernd og sálfélagslegan stuðning barna og fullorðinna, draga úr áhrifum vegna COVID-19 heimsfaraldurs og efla öryggi fólks. Þess er að vænta að verkefnið leiði til þess að lina þjáningar fólks vegna átakanna, velferð og viðnámsþróttur barna og fullorðinna aukist og að fjölskyldur hafi meiri tekjur og bætta afkomu.

Styrkurinn rennur til verkefna Lúterska heimssambandsins í Sýrlandi en Hjálparstarf kirkjunnar hefur árlanga reynslu af því að miðla fjármunum til neyðaraðstoðar í gegnum Lúterska heimssambandið og byggir samstarfið á faglegum grundvelli.

Styrkurinn er hluti af samstarfi utanríkisráðuneytisins við íslensk félagasamtök í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Opið er fyrir umsóknir til mannúðaraðstoðar allt árið svo lengi sem fjárheimildir leyfa. Allar nánari upplýsingar má finna hér.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×