Matur

BBQ kóngurinn: Úrbeinað og fyllt lambalæri á grillið

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Fyllt grillað lambalæri með döðlum, fetaosti og timjan. 
Fyllt grillað lambalæri með döðlum, fetaosti og timjan.  Skjáskot

Í þriðja þætti BBQ kóngsins sýnir Alfreð Fannar Björnsson hvernig framreiða á úrbeinað og fyllt lambalæri. 

Sjálfur segist Alfreð ekki manna bestur í því að úrbeina læri en þrátt fyrir það gekk úrbeinunin stórslysalaust fyrir sig og útkoman glæsileg.

Hér er hægt að nálgast klippu úr þættinum og fyrir neðan má sjá uppskriftina og aðferð. 

Verði ykkur að góðu!

Klippa: BBQ kóngurinn - Úrbeinað og fyllt lambalæri

Úrbeinað og fyllt lambalæri 

  • Læri
    • 1.8 kg úrbeinað lambalæri
    • Döðlur
    • Fetaostur
    • Ferskt timjan
    • Lambamarinering
    • Rósmarín
    • Kjötsnæri
  • Meðlæti
    • Sellerírót
    • Nípa
    • Gulrætur
    • Grasker
    • 1 msk Olía
    • Handfylli ferskt timjian
    • 1 tsk Þurrkuð steinselja
    • 1 tsk Þurrkað rósmarín
    • Saltið eftir smekk
  • Lambamarinering
    • 4 msk límónusafi
    • 1 tsk maukað engifer
    • 2 msk olía
    • 2 tsk karrýduft
    • 1 tsk túrmerik
    • 1 tsk reykt papríka
    • 1 tsk salt
    • 1 tsk pipar
    • ½ tsk cayennepipar

Aðferð

  1. Fyllið lærið með fetaosti, grænum ólífum og rósmaríni.
  2. Rúllið lærinu upp og lokið með kjötsnæri.
  3. Penslið marineringu á lærið og leyfið að liggja í klukkutíma eða yfir nótt.
  4. Kyndið grillið í 150 gráður.
  5. Setjið lærið á óbeinan hita og grillið upp í 62 gráður. Ef þið viljið stökka húð á lærið er gott að færa það yfir hitann þegar fimm gráður eru eftir og vera dugleg að snúa því.
  6. Skerið grænmeti í grófa bita og setjið í körfu á snúningstein eða pakkið í álpappír og grillið á óbeinum hita þar til tilbúið.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá nokkrar girnilegar uppskriftir úr fyrri þáttum en fyrir áhugasama er hægt að nálgasta alla fyrri þætti BBQ kóngsins á Stöð 2+.

Spatchcock kjúklingur

Texas reykt kjúklingabringa


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×